Myndi hafa mikla þýðingu fyrir okkur

Þorsteinn Halldórsson.

Þorsteinn Halldórsson. Ljósmynd/Alex Nicodim

Knattspyrnusamband Íslands og bakhjarlar sambandsins ætla að bjóða öllum stuðningsmönnum frítt á völlinn þegar íslenska kvennalandsliðið mætir Portúgal í síðari umspilsleik liðanna um sæti á HM 2027 þann 5. desember næstkomandi.

Þetta tilkynnti Óskar Örn Guðbrandsson, markaðsstjóri KSÍ, á blaðamannafundi í höfuðstöðvum sambandsins á Laugardalsvelli í dag. Markmiðið er að fylla völlinn.

Fyrri leikur liðanna fer fram í Portúgal 1. desember. Ísland tryggði sér sæti í umspilinu með sigri á Króatíu í undanúrslitum en Portúgal hafði betur gegn Norður-Írlandi.

Landsliðsþjálfarinn valdi 23 leikmenn í verkefnið í dag. Ísland hefur leikið á fimm Evrópumótum í röð en aldrei tekist að tryggja sér sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins.

Aðeins einu sinni hefur verið uppselt á leik hjá íslenska kvennalandsliðinu, þegar liðið mætti Þýskalandi árið 2018. Fáir leikmenn íslenska liðsins sem taka þátt í komandi umspili léku þann leik.

Hvaða þýðingu hefði það fyrir ykkur að ná því að fylla völlinn?

„Mikla. Við þurfum hjálp í þessu verkefni og hjálp til að stíga yfir þennan hjalla og klára þetta. Stuðningur fólks í stúkunni mun skipta máli, það hefur sýnt sig í gegnum tíðina. Því fleiri sem mæta, þeim mun meiri getur stemningin orðið,“ svaraði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari aðspurður á blaðamannafundi í dag. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅