Þórkatla frestar fundum eftir hitafundinn

Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, segir félagið ætla að fara yfir athugasemdir Grindvíkinga áður en fleiri kynningarfundir verða haldnir. Samsett mynd: mbl.is/Karítas/Árni

Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið að fresta tveimur kynningarfundum um endurkaupaáætlun félagsins sem halda átti í Grindavík 17. og 19. nóvember.

Ákvörðunin er tekin í kjölfar fjölmenns íbúafundar í Grindavík á miðvikudag, þar sem áætlunin sætti harðri gagnrýni.

Þetta kemur fram í svari Arnar Viðars Skúlasonar, framkvæmdastjóra Þórkötlu, við fyrirspurn mbl.is.

„Umræður voru góðar og bárust margar athugasemdir við endurkaupaáætlunina,“ segir Örn.

Fara yfir athugasemdir Grindvíkinga

Örn segir að markmið fundarins hafi meðal annars verið að fá frekari viðbrögð frá Grindvíkingum og gefa þeim sem ekki höfðu tekið þátt í fyrra samráði tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Vegna þeirra athugasemda sem bárust hafi félagið ákveðið að fresta næstu kynningarfundum og fara yfir það sem kom fram á fundinum 11. nóvember.

Að þeirri yfirferð lokinni verði nýir fundir skipulagðir. Ekki kemur fram í svarinu hvenær þeir verða haldnir eða hvort til standi að breyta einstökum ákvæðum endurkaupaáætlunarinnar.

Bæjarstjórn Grindavíkur lýsti fyrr í dag yfir vantrausti á vinnubrögð og framgöngu Þórkötlu gagnvart Grindvíkingum og skoraði á stjórnendur félagsins að endurskoða áætlunina í samráði við íbúa.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅