Þyngri dómur fyrir árás við Ráðhústorg
Árásin varð fyrir utan skemmtistað við Ráðhústorgið á Akureyri aðfaranótt 3. ágúst 2024. mbl.is/Sigurður Bogi
Landsréttur hefur þyngt refsingu ungs manns fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás við Ráðhústorgið á Akureyri úr tíu mánaða skilorðsbundnu fangelsi í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðsbundna.
Landsréttur staðfesti að maðurinn skyldi greiða brotaþola eina milljón króna í miskabætur. Maðurinn þarf enn fremur að greiða fimm milljónir í sakarkostnað og tvær og hálfa milljón í áfrýjunarkostnað, að því er fram kemur í dóminum sem féll í dag.
Maðurinn var ákærður fyrir tilraun til manndráps en hvorki héraðsdómur né Landsréttur taldi sannað að hann hefði haft ásetning til að bana brotaþola. Landsréttur staðfesti sakfellingu héraðsdóms fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en þyngdi refsinguna.
Árásin varð fyrir utan skemmtistað við Ráðhústorgið aðfaranótt 3. ágúst 2024. Ákærði var þá sautján ára. Talið var sannað að hann hefði í átökum við annan mann veitt honum þrjá áverka með egghvössu áhaldi, einn á brjósti og tvo á baki.
Ekki sannaður ásetningur til manndráps
Áhaldið fannst ekki og ekki var unnt að ráða af áverkunum hvers konar áhald hefði verið notað. Héraðsdómur taldi engu að síður sannað, með hliðsjón af myndbandsupptöku, vitnisburði og læknisfræðilegum gögnum, að ákærði hefði veitt brotaþola áverkana.
Við mat á því hvort um tilraun til manndráps hefði verið að ræða leit héraðsdómur meðal annars til þess að ákærði hefði reynt að forða sér en brotaþoli farið á eftir honum. Atburðarásin hefði jafnframt verið mjög hröð.
Landsréttur tók undir að ekki væri sannað að ákærði hefði haft ásetning til að bana brotaþola. Þótt áverkarnir hefðu getað verið lífshættulegir væri varhugavert, eins og atvikum var háttað, að slá því föstu að ákærði hefði hlotið að sjá fyrir að atlaga hans gæti leitt til bana. Vísaði rétturinn meðal annars til þess að átök mannanna hefðu aðeins staðið í um fimmtán sekúndur.
Hluti refsingarinnar nú óskilorðsbundinn
Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði dæmt manninn í tíu mánaða fangelsi í september í fyrra og bundið refsinguna að öllu leyti skilorði til tveggja ára.
Ákæruvaldið krafðist þess að refsingin yrði þyngd fyrir Landsrétti. Ákærði krafðist sýknu, en til vara vægari refsingar sem yrði að öllu leyti skilorðsbundin.
Landsréttur ákvað refsinguna átján mánaða fangelsi. Við ákvörðun hennar var litið til alvarleika brotsins, þess að ákærði hefði beitt eggvopni og að brotaþoli hefði hlotið talsverða áverka. Einnig var tekið tillit til þess að brotið var framið í átökum við brotaþola.
Einkum með hliðsjón af ungum aldri ákærða og hreinum sakaferli voru fimmtán mánuðir refsingarinnar bundnir skilorði til tveggja ára.
Miskabætur óbreyttar
Landsréttur staðfesti að maðurinn skyldi greiða brotaþola eina milljón króna í miskabætur, auk vaxta. Brotaþoli hafði krafist 3,5 milljóna króna.
Sérstakri kröfu brotaþola um 500 þúsund króna skaðabætur vegna sjúkrakostnaðar og munatjóns var vísað frá héraðsdómi. Landsréttur benti á að héraðsdómur hefði ekki tekið afstöðu til kröfunnar en taldi ekki ástæðu til að ómerkja dóminn vegna þess. Krafan væri með öllu vanreifuð og engum gögnum studd.
Maðurinn þarf jafnframt að greiða 5.061.498 krónur í sakarkostnað samkvæmt héraðsdómi og 2.426.288 krónur í áfrýjunarkostnað. Kostnaðurinn nemur því samtals 7.487.786 krónum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗