Daníel um Grikkina: Gerðu ekki annað en að væla
„Þetta er svekkjandi,“ sagði Daníel Tristan Guðjohnsen, leikmaður U21 árs landsliðs karla í fótbolta, í samtali við mbl.is eftir jafnteflið við Grikkland, 1:1, á Þróttarvelli í dag. Leikurinn var spilaður í snjókomu og var mikill snjór á vellinum.
„Mér finnst við vera miklu betra liðið. Leikurinn fór auðvitað fram við mjög skrýtnar aðstæður og völlurinn var allur út í snjó. Þetta var svolítið skrýtið en heilt yfir fannst mér við vera miklu, miklu betri í þessum leik,“ sagði Daníel.
Ísland komst yfir þegar skammt var eftir en Grikkir jöfnuðu í uppbótartíma. Seinni leikurinn fer fram á mánudaginn kemur.
„Það er bara ógeðslega svekkjandi að vinna ekki í dag. En eins og ég segi finnst mér við vera miklu betra liðið. Við erum ekkert að fara út til Grikklands núna til að vera litlir.
Við förum bara með kassann út og ætlum að pakka þeim saman. Það er svolítið þannig. Þeir gera ekki annað en að grenja og væla á vellinum. Fótboltalega séð erum við miklu betri,“ sagði hann.
Daníel er sjálfur uppalinn á Spáni og því ekki vanur aðstæðum eins og í dag.
„Þetta var skrýtið. Það var í rauninni ekki mjög mikið hægt að spila fótbolta. Þetta snerist mikið um að sparka boltanum fram, einvígi og baráttu. Maður verður bara að taka því og við gerðum það í þessum leik og vorum miklu betra liðið. En þetta var alveg skrýtið,“ sagði hann.
Daníel klikkaði á víti í leiknum er hann skaut laust og nokkuð beint á markvörðinn.
„Ég ætlaði að vippa honum og boltinn rennur svolítið til hægri. Ég læri bara af þessu,“ sagði Daníel Tristan.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗