Allt sem þú þarft er hjörtu

Marta María Winkel fréttastjóri dægurmála mbl.is skrifar um hjörtu í brúnni sósu. Ljósmynd/Kári Sverriss

Marta María Winkel veltir fyrir sér hvers vegna fólk eldar ekki frekar hjörtu í brúnni sósu en að fá heimsendar núðlur í kvöldmat.

Ömmu Mörtu-hátíðin var haldin hátíðleg á heimili mínu síðastliðinn laugardag. Ekki er um fjölmenna stórhátíð að ræða því hún er haldin af tveimur Mörtum Maríum sem heiðra minningu formóður sinnar, Mörtu Maríu Jónasdóttur, bankastarfsmanns og stólpakonu, með því að elda lambahjörtu í brúnni sósu. Að þessu sinni vorum við bara tvær og okkar nánustu aðstandendur fyrir utan manninn minn því hann var upptekinn. Hann hafði tekið að sér að vera leynigestur í teiti í Kópavogi.

Reyndar bauð ég nokkrum á ömmu Mörtu-hátíðina en enginn vildi koma. Fólk fílar ekki innmat og fúlsar við hjörtum í brúnni sósu, sem er óskiljanlegt.

Á ömmu Mörtu-hátíðinni þarf að elda hjörtun nákvæmlega eins og hún gerði. Það þarf að skera hjörtun í strimla, svolítið eins og fólk sé að skera papriku, og svo þarf að hreinsa þau vel. Inni í hjörtunum geta verið leifar af blóði og brjóski sem þarf að fjarlægja. Þegar búið er að hreinsa vel er best að setja bitana í viskustykki og þurrka vel. Svo er hjörtunum velt upp úr hveiti, þau söltuð og pipruð og smjörsteikt á pönnu þannig að þau verði stökk að utan.

Það er ómissandi þáttur í þessari ömmu Mörtu-hátíð að smakka bitana þegar þeir eru nýsteiktir. Oft hef ég borðað mig nánast sadda með því að smakka og mjög oft brennt mig aðeins á tungunni. Allt er þetta þó hluti af hefðinni. Þegar við amma elduðum hjörtun var eldhúsið reykmettað því hvorki vifta né opinn gluggi réðu við álagið á steikingarpönnunni. Oft var hún með tvær pönnur í gangi því það þurfti að vera nóg af mat.

Þegar búið er að steikja hjörtun á pönnu, þá eru þau soðin í um það bil klukkutíma með gulrótum, lárviðarlaufum og gott er að setja smá kjötkraft út í og líka smá tómatsósu, sem hlýtur að hafa verið mikið „fusion“ á þeim tíma. Í raun þarf ekkert meira en miklir sælkerar bæta náttúrlega alltaf við smá rjóma. Mörturnar ákváðu þó að setja smá rauðvínstár út í sósuna. Amma Marta gerði það reyndar aldrei, allavega ekki í minni viðurvist. Hún drakk samt alveg þrjú staup af líkjör á ári en það var helst þegar Ágústa amma, vinkona hennar og fjölskylduvinur, sem bjó í næsta húsi, kom í heimsókn.

Lambahjörtu eru ódýr og hollur matur sem fólk ætti, ef því er annt um heilsuna, að borða meira af. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Aftur að hjörtunum.

Hjörtu í brúnni sósu eru langt frá raunveruleika margra eða þeirra sem velja sér helst að borða heimsendan mat af skyndibitastöðum, sem er skiljanlegt. Það er þægilegt að panta núðlur í appi um leið og maður „dúmskrollar“. Fólk vill fá að liggja hálfmeðvitundarlaust uppi í rúmi og borða mat sem inniheldur gervinæringu. Það vill ekki sjá dýrablóð og brjósk með eigin augum. Í dag er fólk varað við því á félagsmiðlum ef eitthvert slíkt efni birtist. Mörg okkar eru komin mjög langt frá upprunanum. Það er einmitt eitt af fyrsta heims vandamálunum sem við er að etja. Svo verðum við mjög hissa þegar störfin okkar eru lögð niður því við lifum svo þægilegu lífi að gervigreindin getur leyst okkur af.

Gervigreindin getur reyndar ekki eldað innmat og kannski þurfum við að fara að fara aðeins til baka í öllum þessum pælingum. Lambahjörtu eru prótínrík, innihalda járn og B12-vítamín. Ég held að það sé einmitt þetta sem við þurfum núna og í raun eru hjörtu í brúnni sósu allt sem þú þarft en þú heldur að þig langi ekki í þau. Í Matarást eftir Nönnu Rögnvaldardóttur kemur fram að hjartavöðvinn sé svo seigur að það þurfi að sjóða hjörtun lengi til þess að kjötið verði mjúkt.

Hjarta sem slær er mest notaði vöðvi líkamans og því seigur. Síðast þegar ég vissi var seigla einmitt nokkuð sem við ættum að vinna meira með. Stundum þarf bara að vaða í verkefnin. Kaupa hjörtu í næstu matvörubúð, verka þau, steikja og sjóða! Sjá matinn eins og hann lítur raunverulega út, ekki volgan í óumhverfisvænum frauðkassa.

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅