Útflutningur eldis nálgast 60 milljarða

Sjókvíar. Radarinn vitnar í Deloitte um að fjárfestingar í fiskeldi hafi á síðasta ári verið meiri en nokkru sinni fyrr. Ljósmynd/Colourbox

Í október voru fluttar út eldisafurðir fyrir 5,6 milljarða króna, sem er um 3% aukning frá sama mánuði í fyrra, að því er segir í umfjöllun Radarsins.

Á föstu gengi er aukningin sögð nema rúmum 4%.

„Útflutningsverðmæti eldisafurða er þar með komið í tæpa 57 milljarða króna á fyrstu tíu mánuðum ársins, sem er rúmlega 36% aukning á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra,“ segir í umfjölluninni.

Þá kemur fram að eldisafurðir hafi verið tæplega 7% af heildarverðmæti vöruútflutnings á tímabilinu, en þær hafi aldrei verið fyrirferðameiri í útflutningi á þessum hluta árs.

Sömuleiðis hafi fjárfestingar í fiskeldi verið meiri í fyrra en nokkru sinni fyrr og numið alls um 45 milljörðum króna.

Vitnað er í nýja samantekt Deloitte um að eldisfyrirtæki hafi fjárfest fyrir samtals 135 milljarða króna á undanförnum fimm árum.

Fjárfestingarnar nái bæði til sjókvíaeldis og landeldis.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅