Þórkatla fékk „dálítinn skell“

Pétur Georg Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, boðaði Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóra Þórkötlu, til fundar í morgun vegna gagnrýni Grindvíkinga á endurkaupaáætlunina. Samsett mynd: mbl.is/Karítas

Pétur Georg Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, boðaði Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóra Fasteignafélagsins Þórkötlu, og fulltrúa forsætisráðuneytisins til fundar í morgun vegna viðbragða Grindvíkinga við endurkaupaáætlun félagsins.

Bæjarstjórn Grindavíkur lýsti fyrr í dag yfir vantrausti á vinnubrögð og framgöngu Þórkötlu gagnvart Grindvíkingum og skoraði á stjórnendur félagsins að endurskoða áætlunina í samráði við íbúa.

Fundurinn var haldinn klukkan 8.30 og var tilefni hans sú mikla óánægja sem kom fram á íbúafundi í Grindavík í gær.

„Ég held að það sé alveg óhætt að segja að Þórkatla hafi fengið dálítinn skell í gær,“ segir Pétur í samtali við mbl.is.

Hann segir nauðsynlegt að Þórkatla taki gagnrýni íbúanna alvarlega og bregðist við henni.

Kallar eftir róttækum breytingum

Pétur segir að gera þurfi „drastískar breytingar á endurkaupaáætluninni“.

„Það liggur fyrir,“ bætir hann við.

Hann telur þó að vandinn snúist ekki eingöngu um útfærslu áætlunarinnar heldur einnig um það vantraust sem komið hafi fram í garð félagsins.

„Það er bara að ávinna sér traustið aftur,“ segir Pétur og telur það fyrsta skrefið áður en lengra verði haldið með útfærslu tillagna.

Spurður hvort hann telji það mögulegt segir Pétur að það verði að koma í ljós. Verkefnið sé að minnsta kosti ærið.

Telur skilaboðin hafa komist til skila

Pétur segir jafnframt jákvætt að endurkaupaáætlunin sé loksins komin fram opinberlega. Nú liggi fyrir hvaða leið Þórkatla hyggist fara og hægt sé að ræða áætlunina og bregðast við henni.

Á fundinum í morgun hafi hann lagt ríka áherslu á að Þórkatla tæki skilaboð íbúafundarins alvarlega og gerði breytingar í kjölfarið.

Spurður hvort hann telji þau skilaboð hafa komist til skila svarar Pétur því játandi.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅