Segir byssumanninn hafa átt í deilum við húsfélag
Maðurinn sem er grunaður um að hafa orðið einum að bana og sært fjóra í skotárás í miðborg Washington í Bandaríkjunum í dag virðist hafa átt í deilum við húsfélag fjölbýlishúss í hverfinu.
Þetta sagði Jeffery Carroll, starfandi lögreglustjóri borgarinnar, við fréttamenn.
Að sögn Carroll fannst maðurinn með skotsár sem hann hafði sjálfur veitt sér eftir að hafa lokað sig af í íbúð sinni skammt frá vettvangi. Ekki lá strax fyrir hvert ástand hans væri. Nafn hans hefur ekki verið gefið upp.
Skotinn inni í líkamsræktarstöð
Árásin átti sér stað inni í og utan við líkamsræktarstöð í Logan Circle-hverfinu, um 1,6 kílómetrum norðan við Hvíta húsið.
Carroll sagði að sá sem lést hefði verið skotinn inni í líkamsræktarstöðinni. Einn hinna fjögurra særðu væri í lífshættu en áverkar hinna þriggja virtust ekki lífshættulegir.
Lögreglustjórinn sagði hinn grunaða að því er virtist hafa átt í „einhvers konar deilum“ við húsfélag fjölbýlishússins. Ekki kom nánar fram í hverju þær hefðu falist.
Mikill viðbúnaður
Mikill viðbúnaður var vegna árásarinnar, sem varð á háannatíma morgunumferðarinnar. Tugir bifreiða frá ýmsum löggæslustofnunum sáust aka á vettvang og lögregluþyrlur sveimuðu yfir svæðinu. Lögregla flutti suma íbúa á brott en öðrum var sagt að halda kyrru fyrir þar sem þeir voru.
Michael Carney, viðskiptavinur líkamsræktarstöðvarinnar VIDA Fitness, sagði við The Washington Sun að hann hefði verið á hlaupabretti þegar skotárásin hófst. Hann hefði heyrt hvell og síðan séð manneskju á gólfinu sem hafði verið skotin í höfuðið.
„Allir voru eiginlega bara að fela sig á bak við blómaker og annað slíkt,“ sagði Carney við blaðið.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

