María Rut skýtur á Sigurð Inga – „Málið er allt orðið hið furðulegasta“
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 16:30
María Rut sakar Sigurð Inga um að hlaupa frá ábyrgð sinni.
María Rut Kristinsdóttir, þingkona Viðreisnar, kemur flokksbróður sínum Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra til varnar varðandi starfslok Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar. Skýtur hún á Sigurð Inga Jóhannsson fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins sem afneiti nú lagasetningu í sinni stjórnartíð varðandi faglega skipun í stjórnir ríkisfyrirtækja.
„Daði Már vinur minn og fjármálaráðherra hefur staðið í ströngu síðustu daga. Hann hefur þurft að svara sömu ásökunum aftur og aftur, oft með fullyrðingum sem eru slitnar úr samhengi,“ segir María Rut í færslu á samfélagsmiðlum.
Gott mál að nefnd skoði málið
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt Daða Má eftir að Hörður Arnarson sagði af sér forstjórasætinu í Landsvirkjun. Saka þeir Daða Má um að hafa sagt þinginu ósátt varðandi starfslokin og vísað málinu til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins. María Rut segist ekki kvíða því.
„Það er fullkomlega eðlilegt að ráðherrar sæti gagnrýni og þurfi að svara fyrir störf sín. En það er líka munur á því að leita sannleikans og því leita og leita að afsökun til að fella mann. Að láta ekki staðar numið þrátt fyrir að hafa fengið svör við spurningum margoft. Nú mun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoða málið einnig og það krufið til mergjar. Sem er hið besta mál,“ segir hún.
Sigurður Ingi hlaupið frá ábyrgð
Beinir hún einnig orðum sínum til Sigurðar Inga, sem hafi setið í ríkisstjórn sem kom í gegn lagabreytingu um aðkomu valnefndar að vali stjórnarmanna í Landsvirkjun og öðrum stærri ríkisfyrirtækjum. Sigurður Ingi svaraði þessu á þann hátt að lagasetningin hafi verið „áhugamál embættismanna í ráðuneytinu“ og hafi verið „laumað fram hjá honum.“
„Málið er allt orðið hið furðulegasta,“ segir María Rut. „Nú afneitar Sigurður Ingi til að mynda ábyrgð sinni og fyrri ríkisstjórnar D, B og VG á lagabreytingu um faglega skipun í stjórnir ríkisfyrirtækja, sem hann lagði fram, og vænir embættismenn um að hafa laumað henni í gegn. Í fyrsta lagi laumar enginn neinu í gegnum þingið. Þingið samþykkir lögin. Ráðherrar og ríkisstjórn hvers tíma bera ábyrgð á lagasetningu.“
Skilur ekki viðkvæmnina
Sjálf segist hún ekki skilja viðkvæmnina í málinu. Breytingin færir stjórnir ríkisfyrirtækja úr því að vera pólitískt skipaðar í það að vera faglega skipaðar. Jákvæð breyting sem Daði Már hafi framfylgt þegar hann tók við embættinu af Sigurði Inga.
„Mér finnst Daði Már eiga skilið að fólk meti störf hans af sanngirni. Ekki út frá hávaðanum, heldur staðreyndunum. Það er komin mikil upplýsingaóreiða í málið og það er engin tilviljun. Það á að þyrla öllu upp til að tortryggja og grafa undan trausti til ráðherra,“ segir María Rut að lokum. „Við sem þekkjum Daða vitum vel hvernig hann vinnur. Þar er heiðarleikinn hans stærsti kostur. Viðurkenni að ég hef velt því fyrir mér hvort slíkur heiðarleiki sé bara sumum stjórnmálamönnum svona framandi?“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗