„Skrumskæling lýðræðislegra stjórnarhátta“
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segir framgöngu ríkisstjórnarinnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið hafa einkennst af pólitísku klúðri, dómgreindarleysi og yfirgangi. Hann telur að ríkisstjórnin hafi skrumskælt lýðræðislega stjórnarhætti og segir að í engu frjálslyndu lýðræðisríki hefðu stjórnvöld gengið fram með sambærilegum hætti.
Þetta kemur fram í Spursmálum þar sem Björn ræðir nýútkomna bók sína um aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst og þá atburðarás sem leiddi til þess að þjóðin hafnaði áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Bókin nefnist Þegar Ísland sagði nei.
Björn er harðorður í garð ríkisstjórnarinnar og gagnrýnir sérstaklega að ráðherrar virðist ekki ætla að líta á niðurstöðuna sem endanlega afgreiðslu málsins.
Hann telur að stjórnvöld hafi lagt mikið undir í tilraun sinni til að fá umboð þjóðarinnar til að hefja aðildarviðræður að nýju en vilji nú gera lítið úr þýðingu niðurstöðunnar.
„Ég þakka mínum sæla“
Björn segir að ríkisstjórnin hafi ekki sýnt þá pólitísku dómgreind sem nauðsynleg sé þegar teknar eru ákvarðanir um jafn afdrifarík mál og aðild Íslands að Evrópusambandinu.
„Ég segi eins og sumir aðrir hafa sagt, ég þakka mínum sæla að þetta fólk fékk ekki umboðið til þess að ræða við Evrópusambandið um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“
Hann segir að í bók sinni reki hann atburðarásina og að sú saga gefi tilefni til alvarlegrar gagnrýni á vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.
„Því að á öðrum þræði er þessi frásögn saga um pólitískt klúður, pólitískt dómgreindarleysi og einhvern pólitískan yfirgang sem er ekki þolandi í lýðræðisþjóðfélagi.“
Björn telur mótsagnakennt að stjórnvöld hafi kynnt þjóðaratkvæðagreiðsluna sem sérstakan sigur fyrir lýðræðið en virðist nú vilja draga úr vægi hennar eftir að niðurstaðan varð önnur en þau höfðu vonast til.
„Og svo er okkur boðið þetta upp á þetta sem einhverja lýðræðisveislu,“ segir hann.
Hann bætir við að nú sé þjóðinni helst gefið til kynna að atkvæðagreiðslan hafi aðeins verið eins konar skoðanakönnun.
„Ég segi það ekki“
Í viðtalinu er Björn spurður hvort hann sé með þessu að lýsa framgöngu ríkisstjórnarinnar sem hálfgerðum fíflagangi.
Hann tekur ekki undir þá orðnotkun en svarar með enn þyngri gagnrýni á stjórnarhætti ríkisstjórnarinnar.
„Ég segi það ekki, en þetta er skrumskæling, finnst mér, af svona lýðræðislegum stjórnarháttum.“
Björn segir að gagnrýni sína verði að skoða í ljósi þess að ríkisstjórnin hafi lagt sérstaka áherslu á stuðning sinn við frjálslynd lýðræðisríki.
„Og svo er talað um það að þessi stjórn sé einlæg í stuðningi sínum við frjálslynd lýðræðisríki og svo framvegis.“
Hann telur að framganga ríkisstjórnarinnar samrýmist illa þeirri sjálfsmynd.
„Ég held að í engu frjálslyndu lýðræðisríki hefðu menn gengið fram á þennan veg.“
Vilja halda málinu opnu
Björn gagnrýnir einnig að ríkisstjórnin virðist ekki ætla að loka Evrópumálinu þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Hann vísar til þess að stjórnvöld hafi áður talað um að þjóðin fengi tækifæri til að kveða upp úr um framhald aðildarferlisins en nú sé annað hljóð komið í strokkinn.
„Því er haldið opnu og því, en til hvers? Hver er tilgangurinn?“
Hann spyr hvers vegna stjórnvöld geri ekki skýra grein fyrir því í hvaða tilgangi þau hyggist halda málinu áfram á dagskrá.
„Af hverju er þetta látið hanga yfir okkur í staðinn fyrir að afgreiða og fara á byrjunarreit?“
Björn telur að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar kalli á að stjórnvöld viðurkenni að sú leið sem þau völdu hafi ekki hlotið samþykki þjóðarinnar.
„Þannig að ef að menn ætla að tala um það aftur þá verða þeir að byrja upp á nýtt.“
Segir röng skilaboð hafa farið til Brussel
Björn segir að við lestur bókar sinnar megi jafnframt sjá hvernig íslensk stjórnvöld hafi að hans mati skapað rangar væntingar meðal ráðamanna Evrópusambandsins.
Hann telur að stjórnvöld í Brussel hafi fengið villandi mynd af pólitískri stöðu málsins á Íslandi.
„Ég held líka að það komi fram þegar menn lesa þetta og sjá þennan söguþráð að ráðamönnum í Brussel, ESB-ráðamönnum í Brussel, voru gefin röng skilaboð um hvað væri að gerast á Íslandi.“
Björn telur að ríkisstjórnin hafi verið sannfærð um að hún gæti tryggt sér sigur með því að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni og að sú trú hafi einnig mótað samskiptin við Evrópusambandið.
Viðtalið við Björn má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan:
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗