Hætt við að leggja niður fimm teymisstjórastörf
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur afturkallað ákvörðun um að leggja niður fimm teymisstjórastörf í íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk.
Forstöðumenn kjarnanna lýstu áhyggjum af áhrifunum á daglega starfsemi, þjónustugæði og velferð íbúa og lögðu til aðrar leiðir til að ná sambærilegri hagræðingu.
Áfram er stefnt að 64 milljóna króna hagræðingu í kjörnunum. Henni á meðal annars að ná með breytingum á vaktaskipulagi, minni skörun vakta og öðrum breytingum á mönnun.
Þetta kemur fram í svari Rannveigar Einarsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar. Svarið, sem er dagsett 9. nóvember, var lagt fram á fundi borgarráðs í dag.
Fallið frá fækkun eftir ábendingar forstöðumanna
Upphaflega stóð til að leggja niður eitt stöðugildi teymisstjóra í hverjum fimm íbúðakjarna: Stjörnugróf 11, Árlandi 10, Barðastöðum 35, Þorláksgeisla og Brekknaási 6. Samhliða átti að fjölga stöðugildum í beinni þjónustu við íbúa um hálft stöðugildi í hverjum kjarna.
Samkvæmt svarinu var markmiðið að lækka fjárhagsramma kjarnanna með sem minnstu raski á þjónustu og stuðningi við íbúa. Forstöðumenn lýstu hins vegar áhyggjum af þessari útfærslu og töldu hægt að ná sambærilegri hagræðingu með öðrum aðgerðum.
Á fundi 5. október var samþykkt að falla frá fyrirhugaðri niðurlagningu starfanna. Forstöðumönnum var jafnframt falið að móta aðra útfærslu í samráði við fjármálasérfræðinga og deildarstjóra velferðarsviðs.
Tillögur forstöðumannanna voru samþykktar 3. nóvember og ákvörðunin um fækkun teymisstjóra þá formlega afturkölluð.
Áhrif á þjónustu og öryggi metin reglulega
Fylgjast á sérstaklega með áhrifum nýju aðgerðanna á þjónustu og öryggi. Fundað verður með forstöðumönnum mánaðarlega og staðan metin formlega á þriggja mánaða fresti á árinu 2027. Fyrirkomulagið verður endurskoðað að sex mánuðum liðnum.
Við matið verður meðal annars horft til mönnunar í beinni þjónustu, öryggis íbúa og starfsfólks, tíðni og alvarleika atvika, þjónustugæða og fjárhagslegra markmiða. Komi fram verulega neikvæð áhrif á þjónustu eða öryggi verður fyrirkomulagið tekið til endurskoðunar.
Í svarinu segir jafnframt að upphaflega ákvörðunin hafi verið talin varða innra skipulag starfseminnar innan samþykkts fjárhagsramma. Hún hafi því ekki verið talin kalla á sérstaka afgreiðslu borgarráðs eða velferðarráðs.
Ólík sjónarmið um undirbúninginn
Fulltrúar Samfylkingarinnar fögnuðu afturkölluninni í bókun en lýstu áhyggjum af umfangi hagræðingarinnar. Þeir lögðu áherslu á að hún bitnaði ekki á fólki í viðkvæmastri stöðu.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar sagði niðurstöðuna sýna mikilvægi samráðs við starfsfólk. Hlustað hefði verið á ábendingar forstöðumanna og ákvörðuninni breytt þegar önnur leið að sama fjárhagslega markmiði hefði legið fyrir.
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins fagnaði einnig afturkölluninni en gagnrýndi undirbúning aðgerðanna og lagði áherslu á að fylgst yrði með áhrifum þeirra á öryggi íbúa, starfsfólk og þjónustugæði.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗