Kom frá Amsterdam með kókaín falið innvortis
Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi og til að greiða 1.698.983 krónur í sakarkostnað fyrir að flytja rúmt hálft kíló af kókaíni til landsins, falið innvortis.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í dag.
Maðurinn kom með flugi frá Amsterdam til Keflavíkurflugvallar 26. ágúst. Hann flutti með sér 537,84 grömm af kókaíni með 81–82 prósenta styrkleika. Efnin voru ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.
Við þingfestingu málsins í dag játaði maðurinn sök og samþykkti kröfu ákæruvaldsins um upptöku fíkniefnanna. Játning hans samrýmdist rannsóknargögnum málsins og var það dómtekið án frekari sönnunarfærslu.
Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn hefði ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi, svo kunnugt væri, og að hann hefði játað greiðlega fyrir dómi.
Þá yrði ekki ráðið af gögnum málsins að hann hefði átt fíkniefnin eða tekið þátt í skipulagningu kaupa og innflutnings þeirra með öðrum hætti en að samþykkja að flytja þau til landsins gegn greiðslu.
Á móti vó að maðurinn hafði flutt til landsins verulegt magn af sterku kókaíni sem ætlað var til söludreifingar. Refsingin var ákveðin níu mánaða fangelsi. Gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 27. ágúst kemur að fullu til frádráttar refsingunni.
Sakarkostnaðurinn skiptist í 532.763 króna útlagðan kostnað ákæruvaldsins og 1.166.220 króna þóknun verjanda mannsins, að meðtöldum virðisaukaskatti. Þá voru fíkniefnin gerð upptæk.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗