Hundruð handtekin og hald lagt á milljarða

Europol segir aðgerðirnar hafa varpað ljósi á seiglu markaða á myrkravefnum, sem haldi áfram að aðlagast þrátt fyrir tilraunir lögreglu til að loka þeim. Ljósmynd/Colourbox

Lögregla hefur handtekið 354 einstaklinga og lagt hald á mikið magn fíkniefna, skotvopn og fjármuni í umfangsmiklum alþjóðlegum aðgerðum gegn brotastarfsemi á myrkravefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Europol í dag.

Europol, löggæslustofnun Evrópusambandsins, samræmdi aðgerðirnar, sem báru heitið TorNado og stóðu frá maí 2025 til október 2026. Á þeim tíma réðst lögregla í hundruð aðgerða víða um heim.

Flestir voru handteknir í Bandaríkjunum, eða 132, og í Bretlandi, þar sem 59 voru handteknir.

Lagt hald á vopn og milljarða

Í Evrópu lögðu yfirvöld hald á tæpt tonn fíkniefna, þar á meðal amfetamín, ketamín, MDMA, kókaín og kannabis.

Í Bandaríkjunum var lagt hald á meira en 4,8 tonn fíkniefna og 152 skotvopn. Þar var einnig lagt hald á reiðufé og rafmyntir að verðmæti 150 milljónir evra, sem samsvarar um 20,5 milljörðum íslenskra króna.

Europol segir aðgerðirnar hafa varpað ljósi á seiglu markaða á myrkravefnum, sem haldi áfram að aðlagast þrátt fyrir tilraunir lögreglu til að loka þeim.

Lögreglulið í 14 ríkjum tóku þátt í aðgerðunum, meðal annars í Ástralíu, Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi og Bandaríkjunum.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅