Vísa frá tillögu um rafmagn og vatn fyrir hjólabúa

Hjólhýsabyggðin á Sævarhöfða.

Borgarráð Reykjavíkur vísaði í dag frá tillögu um að opna á ný fyrir rafmagn og vatn fyrir hjólhýsabyggðina á Sævarhöfða 31 yfir vetrarmánuðina.

Meirihlutinn vísar til óviðunandi brunavarna og þess að svæðinu hafi verið lokað.

Tillagan var lögð fram af áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands. Samkvæmt henni átti að tryggja aðgang að rafmagni og vatni frá 16. nóvember til 1. apríl á næsta ári. Jafnframt átti að útfæra fyrirkomulag kostnaðar í samráði við íbúa.

Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Vísa til krafna um úrbætur á brunavörnum

Í bókun meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar segir að leigutökum á Sævarhöfða hafi í júlí verið tilkynnt að til stæði að segja upp leigusamningi vegna óviðunandi brunavarna. Hjólabúum sem höfðu aðstöðu á lóðinni hafi verið gert viðvart á sama tíma.

Leigutökum hafi verið gert að yfirgefa húsnæðið og hjólabúum að fjarlægja hjólhýsi og annan búnað af lóðinni fyrir 1. nóvember.

Samkvæmt bókuninni krefst Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins umfangsmikilla aðgerða til að bæta brunavarnir á svæðinu. Afstaða borgarinnar sé sú að slík fjárfesting sé óforsvaranleg þar sem svæðið sé á leið í umbreytingu og uppbygging fyrirhuguð. Meirihlutinn vísar til þess að svæðinu hafi verið lokað og segir það ástæðu frávísunarinnar.

Segja rafmagnsleysi ógna öryggi

Í greinargerð með tillögunni segir að lokað hafi verið fyrir rafmagn og vatn á Sævarhöfða 31 hinn 2. nóvember. Þar séu enn hjólhýsi, íbúarnir hafi hvergi að leita og borgin hafi ekki boðið þeim önnur úrræði.

Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins gagnrýndi frávísunina harðlega í bókun. Rafmagnsleysið ógnaði öryggi íbúanna, sérstaklega yfir vetrartímann þegar þeir hefðu ekki aðgang að rafmagni til að hita upp híbýli sín.

Fulltrúinn taldi hægt að mæta kröfum um brunavarnir í samráði við íbúa og vísaði jafnframt til þingsályktunartillögu um að skapa lagalegan grundvöll fyrir varanlega búsetu í samþykktum færanlegum búsetueiningum.

Gagnrýna riftun samnings um svæði í Gufunesi

Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins gagnrýndi einnig framgöngu meirihlutans. Í bókun fulltrúans segir að eftir langvarandi óviðunandi aðstæður hjólabúa á Sævarhöfða hafi verið samið um afnot þeirra af svæði í Gufunesi.

Í þeim samningi hafi verið kveðið á um leigugjald og að leigutaki bæri allan kostnað vegna nýtingar, reksturs og viðhalds svæðisins. Nýr meirihluti hafi rift samningnum og skapað mikla óvissu fyrir hjólabúa.

Fulltrúinn gagnrýndi jafnframt viðbrögð borgarinnar, meðal annars að lokað hefði verið fyrir rafmagn og vatn.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅