Ámundi er hættur að fara í heita pottinn út af þessum ósið ungra manna – „Það verður að taka á þessu“

Kristinn H. Guðnason

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 16:01

Ámundi Loftsson er hættur að fara í heita pottinn út af sóðaskap ungra pilta.

Ámundi Loftsson, fyrrum sjómaður og bóndi, er búinn að fá nóg af þeim ósið ungra manna að fara óþvegnir í sundlaugar. Þetta sé sóðaskapur og tillitsleysi við aðra sundgesti.

Í aðsendri grein á Vísi lýsir Ámundi sóðaskap ungra manna á sundstöðum. Vísar hann meðal annars í grein sem hann skrifaði fyrir tveimur árum síðan.

„Þar lýsti ég þeim algenga ósið ungra manna að koma inn í sturturými sundstaðar á sundbuxum utan yfir nærbuxur. Þeir bregða sér undir sturtu, svo þeir rétt ná að blotna um axlir og fara svo út í laug eða pott,“ segir hann. „Þessi skrif voru eitthvað lesin og DV fjallaði nokkuð vel um greinina. Núna tveim áru síðar er þetta ástand orðið enn verra.“

Sóðaskapur og tillitsleysi

Ámundi tekur eftir þessu í hvert einasta skipti sem hann fer í sund í heimabæ sínum Kópavogi. Oftar en ekki séu þetta tveir piltar eða nokkrir saman í hóp.

Sjá einnig:

Ámundi er búinn að fá nóg af þessum plagsið í sundi - „Það verður að taka á þessu“

„Nú er svo komið að ég er hættur að fara í heita pottinn. Mig bara langar ekki í saurgerlabað. „Öllum á að vera ljóst að svona háttsemi er bæði sóðaskapur og tillitsleysi við aðra laugargesti. Það verður að taka á þessu. Þeir sem sjá um rekstur sundstaða verða að tryggja það eftirlit sem dugar til að tryggja að sundlaugargestir þrífi á sér búkinn á viðunandi hátt áður en haldið er til samvistar við aðra laugargesti.“

Vilji er allt sem þarf

Bendir hann á að hægt sé að hafa hreinlætisreglur sundstaðanna sýnilegri og á fleiri tungumálum. Þá geti kennarar hæglega tekið þessa umræðu við nemendur sína sem og starfsmenn íþróttafélaga.

„Sama hve leiðinlegt og óþarft það í raun ætti að vera að þurfa að ræða svona mál, þá er raunveruleikinn því miður sá að það verður ekki hjá því komist. Við hljótum öll að vera sammála um að taka verður á þessu ástandi og að það er hægt að koma þessu í lag,“ segir hann. „Við Íslendingar megum vera stoltir af rótgróinni sundstaðamenningu okkar. Látum hana ekki verða sóðaskap að bráð. Vilji er allt sem þarf.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅