Veita innsýn í angist Meghan Markle eftir að faðir hennar var handtekinn - „Þetta er pabbi hennar“

Thomas Markle eldri var handtekinn þann 6. nóvember sl. eftir að myndefni fannst í geymslum sem hann hafði á leigu í Los Angeles sem sýnir kynferðisbrot gegn börnum. Verði hann sakfelldur á hann yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi.

Dóttir hans, hertogaynjan Meghan Markle, mun vera miður sín yfir málinu. Hún lokaði á öll samskipti við föður sinn fyrir um átta árum síðan eftir að hún var upplýst um ásakanir í hans garð.

Heimildarmaður People segir að hertogaynjan hafi undanfarnar vikur fylgst með fréttaflutningi um málið.

„Hún er niðurbrotin. Þetta er pabbi hennar, maður sem hún ólst upp við að treysta og var mjög náin í mörg ár. Ásakanirnar eru henni þungbærar. Þetta er mikil sorg.“

Hertogaynjan er sem betur fer með sterkt bakland. Hún og móðir hennar, Doria Ragland, halda nú þétt við bakið á hvor annarri. Ragland hefur verið lögreglu til halds og trausts og var meðal annars beðin um að fara yfir myndefni sem er talið sýna Thomas ásamt barnungum stúlkum í kynferðislegu samhengi. Mæðgurnar eru þó hvor í sinni heimsálfunni en styðja hvor aðra símleiðis.

Meghan sat undir miklum ámælum fyrir að loka á föður sinn. Thomas ýtti sjálfur undir það með því að ræða reglulega við fjölmiðla og barma sér yfir framkomu dótturinnar. Það sem enginn vissi þá er að Meghan tók ákvörðun sína eftir að lögreglunni í London barst erindi sem innihélt þungar ásakanir í garð föður hennar. Meghan var á þeim tíma ráðlagt að greina ekki frá þessum ásökunum opinberlega.

Heimildarmaður People segir að nú geti fólk skilið hvers vegna Meghan varð skyndilega svona köld í garð föður síns.

„Ég held að fólk sé nú farið að skilja hvers vegna Meghan tók sínar ákvarðanir, jafnvel þegar hún var gagnrýnd fyrir þær. Almenningur veit ekki alltaf sannleikann og það er mikilvægt að hafa í huga að oft er mun meira að gerast á bak við tjöldin en fólk gerir sér grein fyrir.“

Eftir að Meghan eignaðist börn sín hafi hún verið staðráðin í því að vernda þau frá öllu illu. Þau hafa því aldrei fengið að hitta afa sinn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅