„Það gerist ekkert nema eitthvað sé gert“

Nýja iðnaðarhúsnæðið er að rísa við höfnina í bænum.

Nýja iðnaðarhúsnæðið er að rísa við höfnina í bænum. mbl.is/Guðlaugur J. Albertsson

„Það er ekki ákveðið enn hvaða starfsemi verður í húsinu,“ segir Guðjón Indriðason, útgerðarmaður á Tálknafirði, sem er að byggja 420 fermetra iðnaðarhúsnæði í bænum þar sem ekkert hefur verið byggt áratugum saman.

„Hér hefur ekki verið byggt svona húsnæði lengi,“ segir Guðjón sem segir húsbygginguna á lokametrunum og núna standi yfir frágangur næstu vikurnar. „Þetta verður tilbúið einhvern tíma fyrir jól.“

Þegar hann er spurður um ástæður fyrir byggingu hússins segir hann að innviði fyrir atvinnustarfsemi hafi skort. „Það gerist ekkert nema eitthvað sé gert, eða eins og þeir segja í happdrættinu, að miði sé möguleiki,“ segir hann.

„Það er hellingur sem kemur til greina. Það væri hægt að geyma þarna leiktækin, eins og snjósleða, hjólhýsi eða strandveiðibáta. Svo eru meiri líkur á að fá einhverja starfsemi í bæinn þegar aðstaðan er til staðar.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅