Grænt ljós á nýja tjarnarhólma
Hólminn er orðinn frekar lítilfjörlegur og þörf talin á endurnýjun. Tækifærið verður notað til að bæta við tveimur nýjum hólmum á svæðinu. mbl.is/sisi
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur telur ekkert því til fyrirstöðu að veita leyfi til framkvæmda í Reykjavíkurtjörn.
Eins og fram hefur komið hér í blaðinu er fyrirhugað að endurgera og stækka Litla hólma í suðvesturhluta Reykjavíkurtjarnar, við Ísbjarnarflöt, ásamt því að bæta við tveimur nýjum hólmum í nágrenni hans.
Litli hólmi er illa farinn og þarfnast endurnýjunar. Hann var upphaflega gerður 1949 til að glæða fuglalíf. Nú er staðan sú að hann er að hverfa niður í Tjörnina.
Í suðvesturhorninu eru svo áformaðir þrír nýir hólmar með grynningum á milli. Sá stærsti yrði 200 fermetrar en tveir þeir minni 100 fermetrar.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗