Fimm urðu fyrir skotum: Einn er látinn

Tugir bíla lögreglu og annarra löggæslustofnana lokuðu götum nærri vettvangi, þar á meðal nokkrir sérsveitarbílar. AFP

Fimm urðu fyrir skotum í Logan Circle-hverfinu í Washington í dag, að sögn lögreglu. Mikill viðbúnaður var á svæðinu og hafði grunaður árásarmaður víggirt sig inni í byggingu.

Fram kemur í bandarískum fjölmiðlum að einn sé látinn og að hinir fjórir séu særðir.

Árásin var gerð við gatnamót 15. strætis og P-strætis, í innan við 1,6 kílómetra fjarlægð frá Hvíta húsinu. Þar er íbúðahverfi með kaffihúsum og annarri atvinnustarfsemi.

Brooke Pinto, borgarfulltrúi í Washington, sagði í færslu á samfélagsmiðlum að skothríðin hefði verið fyrir utan líkamsræktarstöðina VIDA í hverfinu.

Lögreglan var með mikinn viðbúnað.

Lögreglan var með mikinn viðbúnað. AFP

Fólki gert að halda sig innandyra

Tugir bíla lögreglu og annarra löggæslustofnana lokuðu götum nærri vettvangi, þar á meðal nokkrir sérsveitarbílar. Neyðarviðvörun var send í farsíma á svæðinu þar sem fólki var gert að halda kyrru fyrir innandyra.

Þyrlur hringsóluðu yfir svæðinu á meðan sjúkrabílar komu á vettvang, að því er segir í bandarískum fjölmiðlum. 

Phil Morton, 37 ára verkfræðingur sem starfar við öryggi ökutækja, sagðist nýkominn til vinnu þegar hann heyrði í fjölda lögreglubíla og ískrandi hjólbörðum fyrir utan skrifstofuna. Í fyrstu hefði hann talið að bílalest forsetans gæti verið á ferð.

Morton lýsti ástandinu á götunni sem „algjörri ringulreið“. Þar hefði verið mikill viðbúnaður lögreglu og lögreglumenn vopnaðir langhlaupa skotvopnum, að því er New York Times greinir frá. 

Heldur hefði róast um klukkan hálftíu að staðartíma, eða hálfþrjú að íslenskum tíma. Þá hefðu þó enn verið lokanir á nokkrum götuköflum umhverfis vettvanginn.

Gatnamótin við VIDA-stöðina eru alla jafna friðsæl þótt þau séu í miðborginni. Í nágrenninu eru veitingastaðir, kirkja og grunnskóli.

Þyrlur hringsóluðu yfir svæðinu á meðan sjúkrabílar komu á vettvang.

Þyrlur hringsóluðu yfir svæðinu á meðan sjúkrabílar komu á vettvang. AFP

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅