Rekinn eftir arfaslakt gengi - Frank líklega að taka við
Crystal Palace hefur rekið Pierre Sage úr starfi knattspyrnustjóra eftir aðeins 16 leiki við stjórnvölinn. Thomas Frank, fyrrverandi stjóri Tottenham og Brentford, er líklegur arftaki.
Ákvörðunin um að reka Sage var tekin eftir 3-1 tap gegn Liverpool á sunnudag. Palace situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir tíu leiki og hefur fengið á sig 24 mörk, flest allra liða í deildinni.
Frank hefur verið án starfs síðan Tottenham rak hann í febrúar. Daninn náði góðum árangri hjá Brentford áður en hann tók við Tottenham.
Sage gæti hins vegar snúið aftur til Lens í Frakklandi, þaðan sem Palace keypti hann fyrir rúmar 4 milljónir punda í sumar. Slík ráðning gæti sparað enska félaginu háar starfslokagreiðslur.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗