Orðið á götunni: Borgarstjóri með derring vegna Borgarlínu – hverjum er hún að hóta?
Mikil sýndarmennska í fjárhagsáætlun borgarinnar 2027
Borgarstjóri Reykjavíkur er með yfirlýsingar um það að ekki verði samþykkt að innheimta veggjöld á stofnbrautum innan borgarinnar og hótar að beita skipulagsvaldi komi upp hugmyndir um það. Ríkissjóður stendur straum af byggingu stofnbrauta um land allt, einnig í þéttbýli. Ef sveitarstjórnir standa í vegi fyrir slíkum framkvæmdum, meðal annars með því að beita skipulagsvaldi eins og Hildur Björnsdóttir segir í viðtali við Morgunblaðið í dag, þá getur það leitt til þess að ríkið láti vera að leggja í slíkar framkvæmdir innan þeirra sveitarfélaga.
Hildur Björnsdóttir getur verið með derring og gert sig breiða með hótunum af þessu tagi en það mun þá ekki bitna meira á öðrum en íbúum Reykjavíkur sem vilja vafalaust að allt verði gert til að umferðin í borginni gangi sem greiðast. Hildur Björnsdóttir og Sjálfstæðisflokkurinn voru ekki kjörin til að tefja endurbætur á umferðarmannvirkjum í borginni með hrokafullum hótunum. Það getur einfaldlega leitt til þess að ríkið beini áherslunum sínum til að bæta umferðarmannvirki í landinu annað en til Reykjavíkur. Hótanir borgarstjóra leysa engan vanda.
Orðið á götunni er að margir hafi tekið eftir því hvernig Hildur Björnsdóttir hefur gengið fram í upphafi kjörtímabilsins með fremur tuddalegum uppsögnum 150 borgarstarfsmanna sem hafa sumir verið ráðnir til baka eða færðir til því uppsagnirnar höfðu ekki verið hugsaðar til enda. Þá hefur verið komið illa fram við hópa fólks sem standa höllum fæti í samfélaginu. Þannig var rafmagnið tekið af fólki sem býr í húsbílum innan borgarinnar, kaffistofa Samhjálpar heldur áfram að vera á hrakhólum, listamönnum hefur verið úthýst úr húsnæði sem þeir hafa haft hjá borginni og annað eftir því. Hildur hefur einkum gert sér far um að reyna að mála fjárhagsstöðu borgarinnar upp sem slæma þegar núverandi meirihluti tók við. Það stenst enga skoðun.
Samkvæmt sex mánaða uppgjörum sveitarfélaga vegna fyrri hluta þessa árs kemur að fram halli á rekstri Reykjavíkurborgar á hvern íbúa hafi verið 22 þúsund krónur á sama tíma og hann var 72 þúsund krónur í Hafnarfirði þar sem Rósa Guðbjartsdóttir hefur ráðið mestu fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hallinn hjá Seltjarnarnesbæ reyndist þá vera 113 þúsund á hvern íbúa í þessu 4.600 manna samfélagi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf stjórnað með hreinum meirihluta. Besta dæmið um „fjármálasnilli“ Sjálfstæðismanna!
Orðið á götunni er að allt tal borgarstjórans um erfiða skuldastöðu í Reykjavík sé bábilja og sett fram til að reyna að fegra öfgahægrisinnaðar aðgerðir nýja meirihlutans. Þegar talað er um skuldir einstakra sveitarfélaga vantar yfirleitt að geta um það að eignastaða Reykjavíkurborgar er í algerum sérflokki. Borgin á yfir 90 prósent af því öfluga fyrirtæki Orkuveitunni sem er gríðarlega mikils virði, sama gildir um Faxaflóahafnir að ekki sé minnst á fasteignir Félagsbústaða sem telur 3.200 íbúðir. Á sama tíma á bæjarsjóður Seltjarnarness 3 – þrjár – félagslegar íbúðir. Með því að reyna að mála fjárhagsstöðu borgarinnar dökkum litum ætlar Hildur að reyna að slá sig til riddara með því að „bæta“ stöðuna þegar á næsta ári. Skoðum það betur.
Heimildin sem kom út í liðinni viku fjallar um fjárhagsáætlun borgarinnar sem lögð hefur verið fram. Þar er gert mikið úr meintum „viðsnúningi“ sem á að verða á árin u 2027. Þar er því haldið fram að halli á borginni árið 2026 verði 6,6 milljarðar króna en áætlunin gerir ráð fyrir 2,8 milljarða króna afgangi árið 2027. Ætlaður „viðsnúningur“ er því 9.4 milljarðar króna. Hvernig er ætlunin að ná þessu fram: Arður frá Orkuveitunni á að hækka um 2 milljarða króna. Meðan Sjálfstæðisflokkurinn var í minnihluta þá gagnrýndi hann hástöfum að verið væri að greiða mikinn arð út úr Orkuveitunni. Nú er það í lagi! Lækka á afskriftir um 2,2 milljarða króna. Það eru reiknaðar fjárhæðir, meðal annars vegna einsskiptisafskrifta sem ráðist var í á árinu 2026 en ekki eru fyrirhugaðar á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir að vextir og verðbætur lækki um 1,9 milljarða króna milli ára vegna þess að borgir gerir ráð fyrir að verðbólga og vextir lækki umtalsvert. Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir því í áætlun sinni fyrir árið 2027 AÐ VERÐBÓLGA Á ÍSLANDI VERÐI FJÖGUR PRÓSENT. Gott ef satt reynist.
Enginn af þeim liðum sem hér eru nefndir sem munu væntanlega bæta afkomu borgarinnar stafar af bættum rekstri eða snilli nýrra stjórnenda. Hér eru á ferð reiknaðar tölur og hærri arður og svo hagræði af lægri verðbólgu sem náð hefur verið niður undir forystu núverandi ríkisstjórnar en ekki borgarstjórnar Reykjavíkur.
Orðið á götunni er að Hildur Björnsdóttir vilji stjórna borginni í anda stefnu Miðflokksins og ætti miklu frekar að vera í samstarfi við þann öfgahægriflokk í borginni en miðjuhægri flokkinn Viðreisn. Að margra mati er það óheppilegt fyrir Viðreisn að bera ábyrgð á þessari vegferð Hildar Björnsdóttur og ætti flokkurinn sem fyrst að forða sér úr þessu samstarfi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗