Miðjumaður Arsenal gríðarlega eftirsóttur
Spænski knattspyrnumaðurinn Martin Zubimendi er gríðarlega eftirsóttur en hann hefur verið orðaður við brottför frá Englandsmeisturum Arsenal að undanförnu.
Það er enski miðillinn The Independent sem greinir frá þessu en Spánverjinn, sem er 27 ára gamall, hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Arsenal á tímabilinu.
Hann gekk til liðs við enska félagið frá Real Sociedad sumarið 2025 fyrir 56 milljónir punda og var í lykilhlutverki á síðustu leiktíð þegar Arsenal varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár þar sem hann byrjaði 34 af 38 leikjum liðsins í deildinni.
Miðjumaðurinn hefur aðeins komið við sögu í sjö leikjum með Arsenal í deildinni á tímabilinu og hefur komið inn á sem varamaður í öllum þeirra.
The Independent greinir frá því að Real Madrid, Atlético Madrid og Chelsea hafi öll mikinn áhuga á spænska landsliðsmanninum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗