Gjaldtaka gæti stefnt ferðamönnum í hættu
Formenn björgunarsveita í Uppsveitum Árnessýslu lýsa yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðs náttúru- og innviðagjalds stjórnvalda við Gullfoss.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu fimm formanna björgunarsveita á svæðinu. Formaður einnar sveitarinnar segir við mbl.is að menn vilji ekki að það sama komi upp og við Stuðlagil þar sem ferðamenn hafa látist.
Telja þeir að gjaldtakan gæti orðið til þess að ferðamenn leiti í auknum mæli á austurbakka Hvítár, þar sem öryggisinnviðir eru ekki til staðar.
Gjaldtakan á að taka til þriggja staða í eigu ríkisins: Þingvalla, Geysis og Gullfoss og í frumvarpsdrögum stjórnvalda er gert ráð fyrir að erlendir ferðamenn greiði 4.500 krónur á mann fyrir aðgang að stöðunum þremur yfir sumartímann en 3.000 krónur yfir vetrartímann.
Ýmislegt ábótavant
„Öryggi ferðamanna verður að vera tryggt áður en breytingar sem geta haft áhrif á hegðun ferðamanna eru settar í framkvæmd,“ segir í tilkynningunni.
Þá segja þeir vanta meðal annars örugga göngustíga, öryggisvarnir við gljúfurbrúnir og önnur hættusvæði, merkingar og leiðbeiningar fyrir gesti.
Þá þurfi jafnframt að kanna hvort vegir, aðgengi og fjarskipti tryggi að hægt sé að koma fólki til aðstoðar ef slys verður. „Án öruggra fjarskipta getur verið erfitt að kalla eftir hjálp og samhæfa viðbrögð,“ segja formennirnir.
Væru uggandi yfir aðstæðum
Kristinn Bjarnason, formaður Björgunarsveitar Biskupstungna, segir í samtali við mbl.is að eins og staðan sé í dag sé mjög takmarkaður straumur ferðamanna við austurbakkann.
„Ef það verður farið að rukka hinum megin og allir fara að flykkjast austan megin þá erum við uggandi yfir aðstæðum. Það eru engir almennilegir stígar eða handrið eða nokkur skapaður hlutur þarna megin,“ segir Kristinn.
Þá vísar hann í nýleg dæmi við Stuðlagil. „Þar er verið að reyna að laga og bæta en þar varð til ferðamannaperla sem því miður hefur kostað mannslíf. Við náttúrulega viljum ekki sjá svoleiðis gerast,“ segir hann að lokum.
Getur skapast alvarleg hætta
Telja formennirnir að fáeinar færslur áhrifavalda eða ákvörðun ferðaskipuleggjenda geti aukið umferð um austurbakkann á skömmum tíma. „Þegar gestum fjölgar skyndilega á óundirbúnu svæði getur skapast alvarleg hætta áður en hægt er að bregðast við,“ segir í tilkynningunni.
Þá kalla þeir eftir því að stjórnvöld fresti fyrirhugaðri gjaldtöku þar til búið er að meta öryggisáhrif svæðisins og tryggja framkvæmd áður en aukinn fjöldi ferðamanna sækir svæðið heim.
Undirritaðir formenn yfirlýsingarinnar eru þeir Tobias Ölvinsson frá Björgunarfélaginu Eyvindi, Kristinn Bjarnason frá Björgunarsveit Biskupstungna, Magnús Bjarki Snæbjörnsson frá Björgunarsveitinni Ingunni, Jóhannes Þórólfur Guðmundsson frá Hjálparsveitinni Tintron og Björn Axel Guðbjörnsson frá Björgunarsveitinni Sigurgeiri.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

