Fimm urðu fyrir skotum
Tugir bíla lögreglu og annarra löggæslustofnana lokuðu götum nærri vettvangi, þar á meðal nokkrir sérsveitarbílar. AFP
Fimm urðu fyrir skotum í Logan Circle-hverfinu í Washington í dag, að sögn lögreglu. Mikill viðbúnaður var á svæðinu og hafði grunaður árásarmaður víggirt sig inni í byggingu.
Fram kemur í bandarískum fjölmiðlum að einn sé látinn og að hinir fjórir séu særðir.
Árásin var gerð við gatnamót 15. strætis og P-strætis, í innan við 1,6 kílómetra fjarlægð frá Hvíta húsinu. Þar er íbúðahverfi með kaffihúsum og annarri atvinnustarfsemi.
Brooke Pinto, borgarfulltrúi í Washington, sagði í færslu á samfélagsmiðlum að skothríðin hefði verið fyrir utan líkamsræktarstöðina VIDA í hverfinu.
Fólki gert að halda sig innandyra
Tugir bíla lögreglu og annarra löggæslustofnana lokuðu götum nærri vettvangi, þar á meðal nokkrir sérsveitarbílar. Neyðarviðvörun var send í farsíma á svæðinu þar sem fólki var gert að halda kyrru fyrir innandyra.
Þyrlur hringsóluðu yfir svæðinu á meðan sjúkrabílar komu á vettvang, að því er segir í bandarískum fjölmiðlum.
Phil Morton, 37 ára verkfræðingur sem starfar við öryggi ökutækja, sagðist nýkominn til vinnu þegar hann heyrði í fjölda lögreglubíla og ískrandi hjólbörðum fyrir utan skrifstofuna. Í fyrstu hefði hann talið að bílalest forsetans gæti verið á ferð.
Morton lýsti ástandinu á götunni sem „algjörri ringulreið“. Þar hefði verið mikill viðbúnaður lögreglu og lögreglumenn vopnaðir langhlaupa skotvopnum, að því er New York Times greinir frá.
Heldur hefði róast um klukkan hálftíu að staðartíma, eða hálfþrjú að íslenskum tíma. Þá hefðu þó enn verið lokanir á nokkrum götuköflum umhverfis vettvanginn.
Gatnamótin við VIDA-stöðina eru alla jafna friðsæl þótt þau séu í miðborginni. Í nágrenninu eru veitingastaðir, kirkja og grunnskóli.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

