Níu þingmenn heimsækja Japan

Utanríkismálanefnd Alþingis, alls níu manns, er sem stendur í heimsókn í Japan. Heimsóknin hófst á mánudag og henni lýkur á morgun, föstudag.

Á vef Alþingis kemur fram að heimsóknin sé í boði japanska þingsins í tilefni af 70 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Japans.

Tilgangur hennar sé að eiga viðræður við fulltrúa japanska þingsins og annarra stjórnvalda um annars vegar tvíhliða samskipti Íslands og Japans, þ.m.t. samvinnu á sviði jarðvarma, fríverslunar, norðurslóðamála og jafnréttismála, og hins vegar stöðu alþjóða- og öryggismála í Austur-Asíu.

Í Tókýó hefur nefndin fundað með forseta japanska þingsins, vinahópi Íslands í þinginu og utanríkismálanefnd þess. Einnig á nefndin fund með varavarnarmálaráðherra Japans. Þá heldur nefndin til Hiroshima og heimsækir friðarsafnið og hittir þar einn eftirlifanda kjarnorkuárásarinnar á borgina. Nefndin á enn fremur fund með borgarstjóra Hiroshima.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅