„Tók aðeins lengri tíma en við héldum“

„Nóttin er orðin köld og dimm, þá kemur næturvinna ekki til greina á þessum tíma. Annars viljum við vinna alla vinnu í höfuðborginni á nóttinni og gerum það á sumrin, vegna þess að við vitum að þetta hefur mikil áhrif á umferð,“ segir Ólafur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Framkvæmdir Vegagerðarinnar á rampinum sem nær af Bústaðavegi niður á Kringlumýrarbraut/Hafnarfjarðarveg í gær tóku lengri tíma en gert var ráð fyrir. Líkt og fram hefur komið ollu þær töluverðum umferðartöfum seinnipartinn í gær og varð sjúkrabíll í forgangsakstri að bregða út af leið.

Ólafur Ágúst Axelsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni, segir við mbl.is að framkvæmdum hafi verið lokið fyrir klukkan 17 en óskandi hefði verið að klára fyrr.

Sjúkraflutningum sé þó ávallt hleypt í gegnum vinnusvæði óski þeir eftir því, jafnvel þótt nýlagt malbik sé undir.

Fengu aukafé til viðhalds

„Þetta kemur til þannig að við fáum þarna aukafé til viðhalds á malbiki, fáum það inn núna mjög seint að hausti og við viljum gjarnan nýta það,“ segir Ólafur.

„Nóttin er orðin köld og dimm, þá kemur næturvinna ekki til greina á þessum tíma. Annars viljum við vinna alla vinnu í höfuðborginni á nóttinni og gerum það á sumrin, vegna þess að við vitum að þetta hefur mikil áhrif á umferð.

Þeim var lokið fyrir klukkan 17 en við hefðum gjarnan viljað klára fyrr og þetta tók aðeins lengri tíma en við héldum.“

Erfitt að koma skilaboðum til allra

Spurður hvort komið hafi til greina að setja upp viðvaranir á götunum þegar um stofnvegaframkvæmd sem gæti haft svona víðtæk áhrif segist Ólafur ekki viss hvort það hefði endilega afstýrt umferðarteppunni.

„Það er alltaf erfitt að koma skilaboðum til allra. Mögulega hefði mátt setja upp skilti aðeins fyrr en ég veit ekki hvort það hefði afstýrt einhverju. Ég átta mig ekki á því í þessu tilviki,“ segir hann.

Vegagerðin sendi tilkynningar til fjölmiðla auk þess sem upplýsingar séu alltaf aðgengilegar á umferdin.is.

„Þið birtið þetta nú til dæmis oft og það er klárlega eitthvað sem hjálpar okkur gríðarlega. Stöku sinnum ef við erum með framkvæmdir í ákveðnum hverfum þá reynum við að fara inn á Facebook-grúppur og tilkynna það þar og vitum að það nær til margra en í þessu tilviki er náttúrulega bara öll borgin undir og kannski engin ein Facebook-grúppa sem hentar.“

Sjúkraflutningar komist alltaf í gegn

Líkt og mbl.is greindi frá varð sjúkrabíll í forgangsflutningi að bregða út af leið vegna umferðarteppunnar í gær. Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, sagði við mbl.is að áhrif teppunnar á neyðarakstur gærdagsins hefðu þó ekki verið mikil.

„Ég skildi það nú þannig að þetta hefði nú ekki verið mikil töf,“ segir Ólafur, inntur eftir viðbrögðum við þeirri frétt.

„Vanalega eru sjúkraflutningarnir með númerin hjá verkstjórunum og ef þeir hringja í okkur og biðja um að fá að komast í gegn út af einhverju þá er þeim alltaf hleypt í gegnum vinnusvæðið, alveg sama hvað. Jafnvel bara yfir nýlagt, heitt malbikið. Við gerum það reglulega ef þeir hafa samband og biðja um það. En auðvitað tefjast þeir í umferðinni að einhverju leyti eins og aðrir, það er ljóst.“

Erfitt á þessum árstíma

Fyrirhugaðar voru áframhaldandi malbiksviðgerðir í dag, annars vegar á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegar og hins vegar á rampinum við Bústaðaveg niður á Kringlumýrarbraut, en þeim hefur verið frestað vegna veðurs þar sem snjór féll á höfuðborgarsvæðinu í morgun.

Að sögn Ólafs hefðu þetta verið minniháttar bletta- og holuviðgerðir sem hefðu tekið mjög stuttan tíma.

„Það eru framkvæmdir sem eru í gangi allt árið eftir veðri og aðstæðum. Við reynum að eiga við þetta næst þegar veður gefur, mögulega í næstu viku. Við viljum ágætt veður í þetta. Það skiptir gæðin máli að við fáum þokkalega heitt veður og þurrt, sem er erfitt að fá á þessum tíma,“ segir hann.

„Það koma oft upp holur og blettir með litlum fyrirvara allt árið um kring og þá er hlaupið í það.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅