Rifti samningnum í Laugardal

Sæunn Björnsdóttir skorar úr úrslitaleik bikarkeppninnar úr vítaspyrnu.

Sæunn Björnsdóttir skorar úr úrslitaleik bikarkeppninnar úr vítaspyrnu. mbl.is/Anton Brink

Knattspyrnukonan Sæunn Björnsdóttir hefur rift samningi sínum við bikarmeistara Þróttar úr Reykjavík.

Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Sæunn, sem er 24 ára gömul, gekk til liðs við Þróttara fyrir tímabilið 2022 eftir eitt tímabil í herbúðum Fylkis.

Hún er uppalin hjá Haukum í Hafnarfirði en hún lék 23 leiki með Þrótturum í Bestu deildinni í sumar og skoraði í þeim tvö mörk.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅