Ógnuðu með skotvopnum og flúðu með verðmætin
Vopnaðir ræningjar höfðu á brott með sér verðmæti fyrir meira en milljón evra úr skartgripaverslun De Beers í París í dag og flúðu á vélhjólum. Engan sakaði í ráninu, að sögn lögreglu.
Milljón evra jafngildir um 137 milljónum íslenskra króna.
Ránið var framið í öðru hverfi Parísar um klukkan ellefu í morgun að staðartíma, eða klukkan tíu að íslenskum tíma. Ræningjarnir ógnuðu viðstöddum með skotvopnum en hleyptu ekki af, að sögn lögreglunnar í París.
Heimildarmaður AFP innan lögreglunnar segir verðmæti ránsfengsins áætlað meira en milljón evra. Staðfestir hann þar með fyrri frétt franska útvarpsmiðilsins Europe 1.
De Beers er stórfyrirtæki í demantaiðnaði og hefur lengi verið ráðandi í viðskiptum með demanta frá sunnanverðri Afríku. AFP
Taldir hafa flúið á vélhjólum
Að sögn sama heimildarmanns, sem óskaði nafnleyndar, er talið að fjórir grunaðir menn með lambhúshettur hafi flúið á vélhjólum í átt að hraðbrautinni. Einn þeirra hafi verið vopnaður hríðskotariffli.
Lögreglan í París kveðst verja miklum mannafla og búnaði til leitarinnar að ræningjunum.
Að sögn saksóknaraembættisins hefur deild lögreglunnar sem fæst við skipulagða glæpastarfsemi hafið rannsókn á málinu. Það er rannsakað sem vopnað rán framið af skipulögðum glæpahópi.
De Beers er stórfyrirtæki í demantaiðnaði og hefur lengi verið ráðandi í viðskiptum með demanta frá sunnanverðri Afríku.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
