Nvidia í frjálsu falli

Jensen Huang sagði af sér í dag.

Jensen Huang sagði af sér í dag. AFP/Josh Edelson

Hlutabréf í bandaríska tæknirisanum Nvidia féllu um 13% við upphaf viðskipta í kauphöllinni í New York í dag eftir að Jensen Huang, stofnandi og forstjóri félagsins, lét af störfum í kjölfar hneykslismáls.

Bréf félagsins hafa nú lækkað um meira en þriðjung frá því að þau náðu metverði í síðasta mánuði og hefur markaðsvirði Nvidia rýrnað um 1,7 billjónir dala á þeim tíma.

Afsögn Huangs hafði einnig áhrif á önnur tæknifyrirtæki. Nasdaq-vísitalan lækkaði um 1,5%.

Fjármálastjórinn tekur tímabundið við

Huang lét af störfum eftir að upplýsingar komu fram um tvenn framhjáhöld hans, þar á meðal við konu sem sökuð er um njósnir fyrir Kína. Málið olli uppnámi innan stjórnar félagsins.

Colette Kress, fjármálastjóri Nvidia, tekur tímabundið við forstjórastarfinu samhliða núverandi störfum. Stjórnin hyggst leita að nýjum forstjóra bæði innan og utan félagsins.

Huang stofnaði Nvidia og hefur verið eini forstjóri þess frá upphafi. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅