Rangskráð bílastæði tefja 150 milljóna greiðslu
Reykjavíkurborg hefur ekki getað efnt að fullu samning um sölu á 125 bílastæðum í Hörpu vegna rangskráningar á eignarhaldi þeirra.
Samkvæmt gögnum sem lögð voru fyrir borgarráð í dag hefur 150,5 milljóna króna afsalsgreiðsla því ekki verið greidd.
Kaupsamningurinn var undirritaður í desember 2024 en við meðferð málsins kom í ljós að bílastæðin sem tilheyrðu borginni voru skráð 105 í stað 125, eins og kveðið var á um í auglýsingu og kaupsamningi.
Þetta kemur fram í bréfi Ólafar Örvarsdóttur, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, dagsettu 5. nóvember. Borgarráð samþykkti í dag kaupsamning og afsal vegna tveggja fasteigna við Austurbakka 2 sem færa á úr eigu Situs ehf. til borgarinnar til að greiða úr skráningarmálunum.
Tuttugu stæði vantaði í skráninguna
Borgarstjórn heimilaði í júní 2024 að bílastæði borgarinnar í bílakjallara Hörpu yrðu sett í söluferli. Í nóvember sama ár heimilaði borgarráð að gengið yrði frá kaupsamningi við hæstbjóðanda vegna 125 stæða. Samningurinn var undirritaður 2. desember 2024.
Þau 20 stæði sem rangskráningin varðar hafði Situs selt og afsalað til Bílastæðasjóðs árin 2014 og 2015. Til að leiðrétta skráninguna hefur meðal annars verið unnið að breytingum á eignaskiptayfirlýsingu og þinglýsingu eignarheimilda á Reykjavíkurborg.
Í bréfi sviðsstjórans segir að málið hafi dregist töluvert vegna flókins eignarhalds bílastæðakjallarans og skráningar byggingarreita sem ákveðið hafi verið að fella niður.
Leiðrétting kostar um 2,25 milljónir
Fasteignirnar tvær sem borgarráð samþykkti að yrðu færðar frá Situs til borgarinnar tengjast þessum byggingarreitum. Samhliða eignayfirfærslunni er unnið að viðauka við eignaskiptayfirlýsingu og þinglýsingu eldri kaupsamnings og afsals vegna stæðanna 20.
Endurgjald borgarinnar fyrir fasteignirnar tvær felst í greiðslu kostnaðar við breytingar á eignaskiptayfirlýsingu ásamt stimpil- og þinglýsingargjöldum. Kostnaðurinn er áætlaður um 2,25 milljónir króna og rúmast samkvæmt bréfinu innan fjárhagsramma umhverfis- og skipulagssviðs.
Þegar skráningin hefur verið leiðrétt og ný eignaskiptayfirlýsing undirrituð og þinglýst verður hægt að efna kaupsamninginn frá desember 2024 að fullu og gefa út afsal. Ógreidd afsalsgreiðsla samkvæmt þeim samningi nemur 150,5 milljónum króna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗