Tætir Ronaldo í sig í hvössum pistli - „Eins og sjálfhverfur smákrakki sem öskrar út í tómið“

Cristiano Ronaldo fær heldur betur að heyra það í harðorðum skoðanapistli sem birtist í breska miðlinum Daily Star í kjölfar ákvörðunar hans um að hætta með portúgalska landsliðinu.

Pistlahöfundurinn telur að Ronaldo hafi ákveðið að hætta áður en Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgals, gæti tekið ákvörðunina fyrir hann.

„Að hætta núna er dálítið fyndið í ljósi þess að fæturnir á honum fóru á eftirlaun fyrir fimm árum,“ segir í pistlinum, sem er skrifaður í fremur léttum tón. 

Hann bendir á að Ronaldo hafi tilkynnt ákvörðun sína aðeins nokkrum klukkustundum áður en Jesus tilkynnti landsliðshóp sinn og að Ronaldo hafi ekki átt að vera í honum.

Höfundurinn sakar Ronaldo jafnframt um að reyna stöðugt að stjórna umræðunni um sjálfan sig og segir að hann þoli illa að vera ekki lengur í sviðsljósinu.

„Hann er meistari í að stjórna fólki. En þar sem hann getur ekki lengur stjórnað fótboltaleikjum þarf hann að láta sér nægja að stjórna frásögninni. Ef hann hefði snefil af auðmýkt eða sjálfsgagnrýni hefði hann stigið til hliðar fyrir mörgum árum.“

Lokaorðin eru ekki síður hörð.

„Þess í stað kveður hann landsliðsfótboltann á aumkunarverðan hátt, eins og sjálfhverfur smákrakki sem öskrar út í tómið á meðan liðsfélagar hans anda léttar.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅