Frankie Muniz fluttur á sjúkrahús eftir árekstur
Frankie Muniz á Martinsville-kappakstursbrautinni í Virginíu 30. október síðastliðinn. AFP/Meg Oliphant
Leikarinn og kappakstursökumaðurinn Frankie Muniz var fluttur á sjúkrahús eftir að hann ók á dekkjavegg á æfingu á Daytona-kappakstursbrautinni í Flórída í gær. Hann var útskrifaður síðar um kvöldið og segist nokkuð aumur eftir slysið.
Muniz, sem er fertugur og þekktastur fyrir aðalhlutverkið í gamanþáttunum Malcolm in the Middle, var við æfingar fyrir keppni á vegum Ford til heiðurs fyrrverandi hermönnum.
Samkvæmt umfjöllun fjölmiðla vestanhafs þurftu viðbragðsaðilar að klippa bílinn upp til að ná honum út. Talsmaður Ford staðfesti við Page Six að Muniz hefði verið vakandi og með fullri meðvitund þegar hann var fluttur til frekari skoðunar.
„Ég er svolítið aumur en Mustang-bíllinn minn stóð sig í að vernda mig,“ sagði Muniz í yfirlýsingu frá Ford Racing. Hann þakkaði jafnframt starfsfólki brautarinnar og sjúkrahússins, sem og öllum sem hefðu haft samband og beðið fyrir honum.
Hugðist heiðra föður sinn og afa
Muniz varð af þátttöku í keppninni vegna slyssins og kvaðst vonsvikinn yfir því. Sex lið tóku þátt, hvert fyrir sína grein bandaríska hersins, til stuðnings hermönnum og fjölskyldum þeirra.
Fyrir slysið hafði Muniz sagt í samtali við fjölmiðla að viðburðurinn hefði sérstaka þýðingu fyrir sig. Faðir hans hefði þjónað bæði í flughernum og sjóhernum og afi hans einnig í sjóhernum.
Muniz hefur undanfarin ár lagt stund á atvinnukappakstur samhliða leiklistinni. Hann segir meðleikara sinn úr Malcolm in the Middle, Bryan Cranston, hafa kynnt sig fyrir íþróttinni árið 2004.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
