Afkoman mun taka kipp á næsta ári

Baðgestir skemmta sér á tónleikum í Bláa lóninu. Töluverðar breytingar hafa orðið á rekstri samstæðunnar sem þykja bæði hafa stuðlað að betri áhættudreifingu og haft verulega jákvæð samlegðaráhrif. mbl.is/Golli

Þó svo að sumum þyki þungt yfir mörkuðum um þessar mundir neitar Elvar Karlsson því að tímasetning hlutafjárútboðs Bláa lónsins kunni að vera óheppileg.

„Bláa lónið er algjörlega einstakt fyrirtæki og hlutabréf í félaginu hafa verið mjög eftirsótt í viðskiptum á óskráðum markaði. Núna stendur almenningi í fyrsta skipti til boða að eignast hlut í félaginu og alveg óháð ytri aðstæðum teljum við að þessi tímapunktur sé ágætur,“ segir Elvar en hann er forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu Landsbankans sem er umsjónaraðili útboðsins ásamt Fossum fjárfestingarbanka.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅