Dósamatur og hrísgrjón rjúka út eftir bækling Almannavarna
Sala á dósamat og hrísgrjónum hefur tvöfaldast hjá Bónus eftir útgáfu bæklings Almannavarna, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Austin Kehmeier/Unsplash
Sala á hrísgrjónum og dósamat hefur aukist um 100 prósent og sala á eldspýtum um 200 prósent. Geymsluþolinn matur rýkur út eftir útgáfu bæklings Almannavarna Verum viðbúin, að því er segir í fréttatilkynningu frá Bónus.
Bæklingurinn kom út 3. nóvember. Honum er ætlað að veita almenningi upplýsingar um hvernig sé hægt að undirbúa sig fyrir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi. Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir fólk greinilega ætla að vera viðbúið.
„Mér sýnist þessi umræða hafa fengið marga til að kíkja í eldhússkápana og velta fyrir sér hvað sé til heima. Við sjáum að minnsta kosti töluvert meiri eftirspurn eftir vörum sem geymast vel. Það þarf að huga að birgðunum eftir að þær eru komnar í hús, svo að maturinn fari ekki til spillis. Allur er varinn góður,“ segir hann.
Björgvin minnir fólk á að gleyma vörunum ekki þegar þær eru komnar inn í skáp. „Velja mat sem heimilisfólkið borðar hvort sem er, kíkja reglulega á dagsetningarnar og nota það elsta fyrst. Góður viðbúnaður ætti ekki að enda í meiri matarsóun.“
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/17/1691786.jpg)
