Guardiola efstur á óskalistanum
Forráðamenn bandaríska knattspyrnusambandsins vilja fá Pep Guardiola sem næsta landsliðsþjálfara karlalandsliðsins.
Það er enski miðillinn Talksport sem greinir frá þessu en Guardiola, sem er 55 ára gamall, er án starfs eftir að hann lét af störfum hjá Manchester City í sumar.
Mauricio Pochettino er í dag þjálfari karlalandsliðsins en hefur gert munnlegt samkomulag við forráðamenn Manchester United um að taka við stjórnartaumunum hjá félaginu.
United rak í morgun Michael Carrick úr starfi knattspyrnustjóra og er Pochettino að taka við af honum.
Bandaríkin eru því í leit að nýjum landsliðsþjálfara en þeir B. J. Callaghan og Steve Cherundolo hafa einnig verið orðaðir við starfið.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗