Ísland grátlega nálægt sigri

Ísland og Grikkland skildu jöfn, 1:1, í fyrri leik liðanna í undankeppni EM U21 árs landsliða karla í fótbolta á Þróttarvelli í dag. Seinni leikurinn fer fram ytra á mánudag.

Sigurliðið í einvíginu fer á lokamót EM í Albaníu og Serbíu næsta sumar. Tapliðið situr eftir með sárt ennið.

Staðan í hálfleik var markalaus og var lítið um opin færi í mjög erfiðum aðstæðum, en völlurinn var sleipur og erfiður enda snjóhvítur.

Galdur Guðmundsson komst næst því að skora fyrir Ísland í hálfleiknum á 19. mínútu þegar hann lék á tvo varnarmenn og negldi boltanum í slána í teignum.

Hinum megin varði Lúkas Petersson mjög vel í tvígang í sömu sókninni um miðbik hálfleiksins. Annars var fátt um fína drætti og var staðan í hálfleik 0:0.

Freyr Sigurðsson með boltann í dag.

Viktor Bjarki Daðason fékk fínt færi til að skora fyrsta markið á 55. mínútu en hann setti boltann rétt framhjá úr teignum eftir fyrirgjöf frá Ágústi Orra Þorsteinssyni.

Ísland fékk dauðafæri til að skora fyrsta markið eftir rétt rúmlega klukkutíma leik þegar brotið var á Ágústi Orra innan teigs. Daníel Tristan Guðjohnsen tók vítið en Nikolaos Botis í marki Grikklands varði mjög slaka spyrnu hans nær auðveldlega.

Davíð Helgi Aronsson skallaði rétt framhjá eftir horn á 70. mínútu og íslenska liðið var áfram líklegra aðilinn.

Þegar það stefndi í markalaust jafntefli skoraði Hilmir Rafn Mikaelsson á 88. mínútu með skalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Ágústi Orra.

Stefndi allt í að það yrði sigurmarkið en Grikkland jafnaði í uppbótartíma með sjálfsmarki og þar við sat. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅