Foo Fighters koma til Íslands með gesti

Kristinn H. Guðnason

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 14:54

Dave Grohl og félagar í Foo Fighters mæta á klakann næsta sumar.

Rokkhljómsveitin Foo Fighters kemur til Íslands og heldur tónleika í Nýju Laugardalshöllinni þann 9. júní næstkomandi. Sænska hljómsveitin The Hives hitar upp.

„Foo Fighters, ein stærsta rokkhljómsveit heims, heldur tónleika í Nýju-Laugardalshöllinni 9. júní 2027. Tónleikarnir eru hluti af Take Cover Tour 2027.

Með Dave Grohl í fararbroddi má búast við háværum gíturum, gríðarlegri orku og ógleymanlegu tónleikakvöldi. Sænsku rokkararnir í The Hives verða sérstakir gestir kvöldsins og sjá um að hita upp fyrir Foo Fighters,“ segir í tilkynningu Senu Live sem heldur tónleikana.

Almenn miðasala hefst föstudaginn 20. nóvember kl. 10
Póstlistaforsala Senu Live fer fram fimmtudaginn 19. nóvember kl. 10

Miðaverð

A svæði 33.990 kr.
B svæði 23.990 kr.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅