Grátlegt fyrir Ísland - „Oj, oj, oj, ég trúi þessu ekki“

Íslenska U-21 árs landslið karla tók á móti Grikklandi í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á EM næsta sumar.

Liðin mættust í Laugardalnum í dag í snjókomu sem setti svip sinn á leikinn. Íslenska liðið var klárlega sterkari aðilinn í leiknum en fyrsta markið kom ekki fyrr en á 88. mínútu.

Þar var að verki Hilmir Rafn Mikaelsson með glæsilegum skalla eftir góðan undrirbúning frá Ágústi Orra Þorsteinssyni. Á þessum tímapunkti hafði Daníel Tristan Guðjohnsen klikkað á víti, en spyrna hans var vægast sagt slök. Hafði Ísland einnig fengið nokkur góð færi.

Þvert gegn gangi leiksins jöfnuðu Grikkir hins vegar í uppbótartíma. Hilmir setti boltann þá í eigið net. „Oj, oj, oj, ég trúi þessu ekki,“ sagði Ríkharð Óskar Guðnason, sem lýsti leiknum. Tók hann sennilega nokkuð vel utan um tilfinningar Íslendinga sem horfðu á leikinn með þessum orðum.

Seinni leikurinn fer fram í Grikklandi á mánudag og er staðan jöfn, 1-1, fyrir hann. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅