Faðir í Reykjavík ákærður fyrir svívirðilegt brot gegn dóttur sinni

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgrun, sifjaspell og stórfellt brot í nánu sambandi gegn dóttur sinni. Meint brot var framið laugardaginn 25. maí 2024 á heimili feðginanna. Er ákærði sagður hafa þuklað á berum brjóstum og rassi stúlkunnar og haft við hana samræði, án samþykkis hennar og með því að beita hana ólögmætri nauðung og nýta sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum vegna ölvunar og svefndrunga.

Segir að ákærði hafi ógnað á alvarlegan hátt lífi, heilsu og velferð dóttur sinnar. Aldur hennar er afmáður úr ákærunni en ráða má af samhengi að hún hafi verið undir lögaldri er brotið var framið. 

Fyrir hönd stúlkunnar er gerð miskabótakrafa að fjárhæð fjórar milljónir króna. 

Málið er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Munnlegur málflutningur verður 16. nóvember en málið var þingfest í lok september. Þinghald í málinu er lokað. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅