Á fimmta hundrað mættu í partý í matvöruverslun á degi einhleypra

Það var heldur betur líf og fjör í Krónunni á Granda í gær þegar Krónan og Smitten slógu saman í óvenjulegt partý í tilefni af degi einhleypra. Á fimmta hundrað gesta mættu til að fagna einhleypileikanum og hver veit nema einhverjir hafi jafnvel fundið ástina á milli búðarhillanna. 

Boðið var upp á óáfenga kokteila, leiki og ýmsar kynningar og stemningin var eins og á besta skemmtistað. Nokkrir gestir tóku þetta skrefinu lengra og skelltu sér á blint stefnumót í miðri matvöruversluninni, þar sem sérstaklega hafði verið útbúin aðstaða fyrir slíkt. 

Eva Ruza, gleðigjafi með meiru, hélt uppi stuðinu ásamt Röggu Hólm sem þeytti skífum og sá til þess að verslunin breyttist í sannkallaðan partýstað. Útvarpsfólkið Guðjón Smári Smárason og Jóna Margrét Guðmundsdóttir tóku að sér hlutverk Amor og freistuðu þess að leiða einhleyp hjörtu saman. 

Matvöruverslanir eru ekki aðeins staður til að versla heldur geta þær líka verið vettvangur fyrir félagsleg samskipti og óvænt kynni. Kannanir hafa sýnt að margir kjósa að kynnast fólki í matvöruverslun en í einni könnun sögðust 81% vera opin fyrir því að kynnast einhverjum í hversdagslegum aðstæðum og 76% töldu matvöruverslun góðan stað til að hitta mögulegan maka. 

Rannsóknir hafa einnig skoðað matvöruverslanir sem svokölluð third places, eða félagsleg rými utan heimilis og vinnu. Slíkir staðir geta skapað tækifæri fyrir dagleg samskipti og stuðlað að félagslegum tengslum. Fólk fer því ekki endilega eingöngu í búðina til að versla, heldur getur heimsóknin líka verið hluti af félagslegu lífi fólks. Allt bendir þetta til þess að matvöruverslunin geti verið eðlilegur, afslappaður og aðgengilegur staður fyrir ný kynni, þar sem samskipti verða til í hversdagslegu umhverfi.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅