Vonbrigði eftir fund með ráðherra
Stjórn SSA lýsir miklum vonbrigðum með niðurstöðu fundar með Eyjólfi Ármannssyni. mbl.is/Eyþór/Árni Sæberg
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) lýsir miklum vonbrigðum með niðurstöðu fundar með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra og starfsfólki ráðuneytisins í gær, miðvikudaginn 11. nóvember.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá SSA.
Þar segir að stjórnin hafi óskað eftir því við ráðherra að hann frestaði fyrirhuguðum breytingum á Loftbrúnni svo hægt yrði að vinna í sameiningu að lausn um framtíðarfyrirkomulag hennar. Ráðherra hafi lýst því yfir að ákvörðunin stæði og að breytingarnar gengju eftir.
Tilefni fundarins var ályktun sem stjórn SSA samþykkti 27. október. Á þeim fundi fól stjórnin framkvæmdastjóra Austurbrúar að koma ályktuninni á framfæri við ráðherra og óska eftir fundi með honum.
„Á fundinum gagnrýndi stjórn SSA samráðsleysið við undirbúning breytinganna. Þegar Loftbrúin var mótuð var unnið í þéttu samráði við landshlutasamtök sveitarfélaganna, Byggðastofnun og þingmenn. Stjórn SSA telur óásættanlegt að stjórnvöld boði svo veigamiklar breytingar á úrræðinu án þess að eiga fyrst raunverulegt samráð við sveitarfélögin og landshlutasamtökin sem breytingarnar snerta beint,“ segir í tilkynningu SSA.
Bitnar á þeim sem þurfa að ferðast með skömmum fyrirvara
Enn fremur segir í tilkynningunni að með því að færa niðurgreiðsluna úr 40% af fargjaldi í fasta krónutölu fái þeir sem greiða hæstu fargjöldin hlutfallslega minnstan stuðning. Þetta bitni sérstaklega á fólki sem þurfi að ferðast með skömmum fyrirvara.
„Innanlandsflug er ein helsta almenningssamgönguæð Austurlands og breytingin þrengir að aðgengi íbúa að þjónustu,“ segir í tilkynningunni.
„Afstaða ráðherra veldur sérstökum vonbrigðum í ljósi þess að stjórn SSA telur, miðað við afstöðu sem stjórnarþingmenn hafa lýst, að þingmeirihluta skorti fyrir einhliða breytingum á Loftbrúnni.“
Stjórn SSA metur það svo að fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú séu til þess fallnar að draga verulega úr jöfnunaráhrifum þessa mikilvæga byggðajöfnunarúrræðis sem komið var á fót árið 2020.
Breytingarnar gangi gegn upphaflegum markmiðum Loftbrúar um að jafna búsetuskilyrði og bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að þjónustu.
„Stjórn SSA ítrekar því áskorun sína til ráðherra um að fresta breytingunum og hefja raunverulegt samráð um framtíð Loftbrúar,“ segir í niðurlagi tilkynningarinnar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
