Lýsa yfir vantrausti á Þórkötlu
Bæjarstjórn Grindavíkur hefur lýst yfir vantrausti á vinnubrögð Þórkötlu og krefst endurskoðunar á endurkaupaáætlun félagsins. Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, var á íbúafundinum í gær. mbl.is/Karítas Sveina
Bæjarstjórn Grindavíkur lýsir yfir vantrausti á vinnubrögð og framgöngu Fasteignafélagsins Þórkötlu gagnvart Grindvíkingum og skorar á stjórnendur félagsins að endurskoða áætlun um endurkaup fasteigna í samráði við íbúa.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem bæjarstjórn sendi frá sér í dag í kjölfar íbúafundar sem haldinn var í Gjánni í Grindavík í gær, 11. nóvember.
Í yfirlýsingunni segir að niðurstaða fundarins hafi verið afdráttarlaus. Grindvíkingar treysti hvorki stjórn né stjórnendum Þórkötlu og hafni endurkaupaáætlun félagsins í núverandi mynd.
Segja áhættuna hvíla á þeim sem snúa fyrst heim
Bæjarstjórn gagnrýnir áætlunina harðlega og telur hana bera þess merki að stjórnendur Þórkötlu skorti skilning á raunverulegum aðstæðum Grindvíkinga.
Tímasetning endurkaupanna henti ekki fjölskyldum, kaupverðið taki ekki mið af ástandi fasteigna og áhættan hvíli á þeim sem fyrstir snúa aftur heim.
Þá segir í yfirlýsingunni að íbúar telji félagið hvorki hlusta á sjónarmið þeirra né sýna aðstæðum þeirra nægilegan skilning.
„Grindvíkingar eru ekki að biðja um ölmusu og vilja ekkert frítt. Þeir vilja að hlustað sé á sjónarmið þeirra en það hefur Fasteignafélagið Þórkatla ekki gert nema að litlu leyti.“
Krefjast endurskoðunar
Bæjarstjórn minnir á að uppkaup fasteigna í Grindavík hafi verið björgunaraðgerð í miðjum náttúruhamförum og að endurkaupaáætlunin eigi að vera mikilvægt skref í þeirri aðgerð.
Markmið laganna sé að verja fjárhag og velferð íbúa en bæjarstjórn telur fyrirliggjandi áætlun Þórkötlu ganga gegn því markmiði.
Bæjarstjórn skorar því á stjórn og stjórnendur félagsins að hlusta á sjónarmið Grindvíkinga og endurskoða áætlunina í samstarfi við þá.
„Grindavík verður ekki byggð upp án Grindvíkinga,“ segir að lokum í yfirlýsingunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
