Viðvörunum fjölgar og frostrigning í kvöld

Svona lítur viðvaranakort Veðurstofunnar út fyrir helgina.

Svona lítur viðvaranakort Veðurstofunnar út fyrir helgina. Kort/Veðurstofa Íslands

Líkur eru á frostrigningu og þar með flughálku á köflum um suðvestanvert landið síðdegis í dag og kvöld, þá einkum í uppsveitum sunnanlands.

Þetta kemur fram í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar í dag.

Þá er norðvestanstormur eða -rok í kortunum fyrir Suðausturland um helgina með vindhraða 18-25 m/sek og vindhviðum að 45-50 m/sek, einkum austan Öræfa.

Veðurstofa Íslands varar við veðrinu og hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun sem tekur gildi klukkan 5 á laugardagsmorgun. Gildir hún til kl. 11 sama morgun.

Í viðvöruninni segir að staðbundið tjón geti orðið á mannvirkjum og fólk því hvatt til að halda sig innandyra. Þá er fólki ráðið frá ferðalögum á meðan viðvörunin er í gildi.

Búast má við að færð spillist

Viðvaranir voru gefnar út í morgun fyrir Norðurland vestra og eystra, Vestfirði og miðhálendið. Taka þær gildi annað kvöld og renna úr gildi yfir nóttina eða á laugardagsmorgun. Eftir hádegi bættist við gul viðvörun á Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og Breiðafirði.

Í ábendingu Vegagerðarinnar segir að búast megi við að færð spillist á fjallvegum.

Til dæmis á Öxnadalsheiði, Vatnsskarði og Steingrímsfjarðarheiði eftir kl. 16 og stuttu síðar má einnig búast við ófærð á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Vatnaleið. Hríðin færist svo til austurs þegar líður á kvöldið og nóttina.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅