Fyrsti erindreki „loftslagsöryggis“ í heiminum
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, hefur tilkynnt um skipun sérstaks erindreka sem einbeitir sér að „loftslagsöryggi“.
Embættið er það fyrsta sinnar tegundar í heiminum og er ætlað að búa Bretland betur undir vaxandi áhrif hnattrænnar hlýnunar.
Í ræðu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, í Antalya í Tyrklandi rifjaði leiðtogi Verkamannaflokksins upp að hann hefði varið fyrstu þremur vikum sínum sem forsætisráðherra síðastliðið sumar í að bregðast við verstu gróðureldum sem Bretland hefur nokkru sinni upplifað.
„Ég ákvað þá að það væri mikilvægt fyrir mig að vera hér til að sýna forystu Breta í heimi þar sem loftslagsmál hafa fallið of mikið í skuggann,“ sagði Burnham, sem var eini leiðtogi G7-ríkjanna sem sótti ráðstefnuna.
Bretland og önnur ríki Vestur-Evrópu upplifðu heitasta sumar sem mælst hefur, með hverri hitabylgjunni og gróðureldunum á fætur annarri. Hitinn olli tugum þúsunda umframdauðsfalla í álfunni.
„Loftslagsmál eru þjóðaröryggismál,“ sagði Burnham.
„Til marks um það tilkynni ég í dag skipun Dame Madeleine Alessandri sem fyrsta sérstaka fulltrúa Bretlands í loftslagsöryggismálum,“ sagði hann.
Alessandri er fyrrverandi formaður sameiginlegu leyniþjónustunefndar Bretlands (Joint Intelligence Committee), sem upplýsir ráðherra um öryggisógnir.
„Í þessu hlutverki mun ég vinna með samstarfsaðilum innan stjórnkerfisins og á alþjóðavettvangi að því að efla skilning okkar á loftslagsógnum, byggja upp viðnámsþrótt og tryggja að við séum betur undirbúin fyrir þær áskoranir sem fram undan eru,“ sagði Alessandri í yfirlýsingu.
Bretland hefur nú þegar loftslagsráðherra, Katie White, sem er stödd í Antalya vegna COP31-viðræðnanna sem áætlað er að ljúki 20. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
