Skotárás nærri Hvíta húsinu
Nokkrir hafa orðið fyrir skotum í og við líkamsræktarstöð í miðborg Washington, að sögn Brooke Pinto borgarfulltrúa. Fjölmennt lögreglulið er á vettvangi og leitar að grunuðum árásarmanni.
Lögreglan í Washington greindi frá því á X að viðbragðssveit hennar væri á vettvangi yfirstandandi skotárásar á Logan Circle-svæðinu. Svæðið er um 1,6 kílómetra frá Hvíta húsinu.
Pinto sagði árásina hafa átt sér stað bæði inni á líkamsræktarstöðinni og utan við hana og að nokkrir hefðu orðið fyrir skotum.
Íbúar hafa verið hvattir til að halda sig frá svæðinu. Árásin varð á annatíma í morgunumferðinni og kallaði á umfangsmiklar lögregluaðgerðir. Lögreglumenn frá nokkrum löggæslustofnunum sáust hraða sér á vettvang.
Lögreglan í Washington greindi frá því á X að viðbragðssveit hennar væri á vettvangi yfirstandandi skotárásar á Logan Circle-svæðinu. Svæðið er um 1,6 kílómetra frá Hvíta húsinu. AFP
Fólk faldi sig bak við blómaker
Blaðið The Washington Sun hefur eftir Michael Carney, viðskiptavini líkamsræktarstöðvarinnar VIDA Fitness, að hann hafi verið á hlaupabretti þegar skothríðin hófst.
Carney sagðist hafa heyrt hvell og síðan séð manneskju á gólfi stöðvarinnar sem hefði verið skotin í höfuðið.
„Fólk var að fela sig bak við blómaker og annað slíkt,“ sagði hann við blaðið.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

