Myndir: Fyrsta skóflustungan að nýrri Þjóðarhöll

Ungt afreksíþróttafólk úr landsliðum og félögum í Laugardal tók fyrstu skóflustunguna. mbl.is/Eyþór

Fyrsta skóflustunga nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal var tekin í dag. Þar með hófust formlega framkvæmdir við nýjan heimavöll íslenskra landsliða í innanhússíþróttum, mannvirki sem stenst alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu og bætir aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal til æfinga og keppni.

Athöfnin hófst kl. 13 í Laugardalshöll með ávörpum fulltrúa ríkis, Reykjavíkurborgar, íþróttahreyfingarinnar og framkvæmdaraðila. Þeir sem fluttu ávörp voru Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Þóroddur Ottesen Arnarson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka, og Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Að ávörpum loknum var gengið út á lóð Þjóðarhallar, þar sem ungt afreksíþróttafólk úr landsliðum og félögum í Laugardal tók fyrstu skóflustunguna.

Fyrsta skóflustunga nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal var tekin í dag.

Fyrsta skóflustunga nýrrar Þjóðarhallar í Laugardal var tekin í dag. mbl.is/Eyþór

„Nýr kafli í íslenskri íþróttasögu“

Þjóðarhöll verður um 17.700 fermetrar, með 8.600 sætum og getur tekið allt að 12.000 gesti á viðburðum. Stefnt er að því að Þjóðarhöllin verði tilbúin í janúar 2030, í tæka tíð fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik 2031 sem Ísland heldur ásamt Danmörku og Noregi.

„Með skóflustungunni hefst nýr kafli í íslenskri íþróttasögu,“ er haft eftir Thomasi Möller, formanni stjórnar Þjóðarhallar ehf., í tilkynningu um skóflustunguna.

„Ný Þjóðarhöll verður heimavöllur landsliðanna okkar og vettvangur stórra stunda, og hún bætir jafnframt aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal. Það er við hæfi að ungt afreksíþróttafólk taki fyrstu skóflustunguna, því það er fyrir það og komandi kynslóðir sem við byggjum þetta hús.“

Þar með hófust formlega framkvæmdir við nýjan heimavöll íslenskra landsliða í innanhússíþróttum. mbl.is/Eyþór

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Eyþór

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur.

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur. mbl.is/Eyþór

Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf.

Thomas Möller, formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf. mbl.is/Eyþór

Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. mbl.is/Eyþór

mbl.is/Eyþór

mbl.is/Eyþór

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅