Alblóðugur eftir árás í miðju viðtali
Íþróttir | mbl | 12.11.2026 | 14:05
Fyrrverandi UFC-meistarinn Merab Dvalishvili var alblóðugur eftir að Usman Nurmagomedov og félagar hans réðust á hann á meðan hann var í viðtali í anddyri hótels í Abú Dabí í gær.
Myndskeið sýnir Nurmagomedov slá hann utan undir áður en hópslagsmál brjótast út.
„Usman Nurmagomedov og vinir hans komu eins og snákar aftan að okkur,“ sagði Dvalishvili í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum á meðan hann fékk aðhlynningu.
Dvalishvili á að glíma við Marlon Moraes á RAF Abú Dabí á laugardag. Hann sigraði eldri bróður Usmans, Umar, í titilbardaga í UFC í janúar 2025.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗