Meloni segir hótunum ætlað að vekja ótta
Lögreglumenn standa utan við Virgilio-skólann í Róm eftir að nemendur voru fluttir út vegna sprengjuhótunar í gær. AFP
Nokkrir skólar á Ítalíu voru rýmdir í dag vegna tilhæfulausra sprengjuhótana sem bárust með tölvupósti, annan daginn í röð. Ítölsk stjórnvöld segja ekki ástæðu til að rýma byggingar vegna slíkra fjöldapósta nema aðrar vísbendingar séu um raunverulega hættu.
Forsætisráðherra Ítalíu segir að hótununum sé ætlað að vekja ótta.
Hundruð skóla víðs vegar um landið voru rýmd í gær og sums staðar skapaðist skelfing og ringulreið. Hótunarpóstur var þá sendur til þúsunda skóla, nær allra ríkisrekinna skóla á Ítalíu. Pósturinn var sagður hafa verið sendur úr tölvupóstsaðgangi í Taívan.
Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum voru fleiri skólar rýmdir í dag eftir að um 1.800 sprengjuhótanir bárust með tölvupósti. Að þessu sinni voru póstarnir sagðir koma frá tölvupóstsaðgöngum á Filippseyjum.
Ekkert fundist við leit lögreglu
Hótunarpóstarnir í gær og í dag voru undirritaðir með nafninu „Míkhaíl Andropov“.
Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, sagði eftir fund með yfirmönnum leyniþjónustu og öryggismála í gær að skilaboðunum væri ætlað að vekja ótta. Ekkert hefði fundist við leit lögreglu í skólunum.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í dag segir að ekki eigi að rýma byggingar ef engar áþreifanlegar vísbendingar séu um raunverulega hættu aðrar en að fjöldapóstur hafi borist.
Óvíst hver stendur að baki hótununum
Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir of snemmt að segja til um hvort erlend ríki standi að baki nýlegri hrinu tilhæfulausra sprengjuhótana í Evrópu, meðal annars gegn flugi og skólum.
„Eins og staðan er núna höfum við ekki nægar upplýsingar til að geta sagt hver beri ábyrgð,“ sagði Macron við fréttamenn á fundi evrópskra leiðtoga í Dyflinni.
„Við getum ekki sagt til um hvort erlend ríki standi að baki þessum hótunum.“
Thomas Regnier, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði hvers kyns hótanir gegn almennum borgurum með öllu óásættanlegar. Framkvæmdastjórnin fylgdist grannt með stöðunni.
Á Ítalíu og víðar í Evrópu hafa áhyggjur aukist af því að nýlegar tilhæfulausar sprengjuhótanir gegn flugi og netárásir á kælikerfi matvöruverslana kunni að vera hluti af umfangsmiklum blendingshernaði.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗