Reyndur lögreglumaður varð fyrir mismunun vegna aldurs - Viðurkennt að mat á reynslu hans hafi verið rangt

Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að lögreglumaður, sem starfað hefur um árabil í lögreglunni, hafi orðið fyrir mismunun á grundvelli aldurs þegar hann sótti um stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Embættið viðurkenndi að því hafi ranglega verið haldið fram að lögreglumaðurinn hefði ekki uppfyllt þá hæfniskröfu að hafa reynslu af stjórnun innan lögreglunnar. Taldi lögreglumaðurinn einnig að mat á hæfni umsækjenda hafi verið lagað sérstaklega að þeim aðila sem varð fyrir valinu.

Lögreglumaðurinn sótti um embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði sem auglýst var laust til umsóknar árið 2023.

Fimm einstaklingar sóttu um og skipuð var ráðgefandi valnefnd sem tók viðtöl við alla umsækjendur. Að þeim loknum voru tveir úr hópnum boðaðir í annað viðtal en umræddur lögreglumaður var ekki annar þeirra.

Í kæru lögreglumannsins kom fram að hann hefði verið hæfasti umsækjandinn og vísaði hann þar til langs starfsferils síns innan lögreglunnar. Hann hefði lengstu stjórnunarreynslu umsækjenda, þar með talið innan þeirrar deildar sem nýtt embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns skyldi vera staðsett. Til viðbótar byggi hann yfir áratugalangri reynslu af rannsóknum sakamála og reynslu af saksókn mála.

Taldi lögreglumaðurinn sig ekki hafa verið metinn að verðleikum og sagði að fulltrúar í valnefndinni hefðu lítið þekkt til starfa hans og þar að auki hefðu nefndarmenn haft litla þekkingu á starfssviði þess embættis sem verið var að skipa í.

Sagði lögreglumaðurinn að í viðtalinu hafi hann aðallega verið spurður hvaða ár hann fór með mannaforráð en lítið verið farið út í aðra matsþætti.

Hvað með reynsluna

Vildi lögreglumaðurinn síðan meina að honum hefði greinilega verið mismunað á grundvelli aldurs með því að stjórnunarreynsla hans hafi verið talin einskis virði. Þar vísaði hann til rökstuðnings Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, þar sem fram hafi komið að hann hafi ekki uppfyllt þá hæfniskröfu að hafa reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu.

Vildi lögreglumaðurinn einnig meina að ákvörðun hafi verið tekin um að útiloka hann fyrir fram með því að gera lítið úr farsælli stjórnunarreynslu hans og þekkingu á starfsmannamálum, við mat á hæfniskröfu auglýsingar um farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum.

Benti hann einnig á það að í rökstuðningi Lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu hafi beinlínis verið tekið fram að hann hafi ekki komið til álita í stöðuna vegna aldurs þar sem hann tilheyrði ekki nýjum kynslóðum sem hefðu breyttar áherslur og breytta stjórnunarhætti. Orðalag hæfniskröfu auglýsingarinnar um farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu hafi ekki tiltekið að slík reynsla þyrfti að vera ný. Hann hafi haft lengstu stjórnunar- og starfsreynslu allra umsækjenda innan lögreglu og á mörgum sviðum. Mat valnefndar á reynslu hans hafi einungis byggt á ólögmætu sjónarmiði um að hann tilheyrði eldri kynslóð sem hafi ekki tileinkað sér breytta stjórnunarhætti á vinnumarkaði nútímans.

Taldi lögreglumaðurinn að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki getað fært nein málefnaleg rök fyrir skipun í embættið og heldur ekki sýnt fram á að aðrar ástæður en aldur hafi verið fyrir því að hann varð ekki fyrir valinu.

Lögreglumaðurinn gerði einnig ýmsar aðrar athugasemdir við allt umsóknarferlið. Meðal annars benti hann á að sá umsækjandi sem var skipaður í embættið hafi fengið 100 prósent skor í matinu sem hafi bent til þess að stigagjöf hafi verið ákveðin út frá þeim umsækjanda. Þannig hafi umsækjandinn staðið jafnfætis öðrum umsækjendum í matsþáttum þar sem aðrir hefðu í raun átt að fá fullt hús stiga en ekki sá sem skipaður var.

Í rökstuðningi lögreglustjóra hafi komið fram að þeir matsþættir sem lagðir voru til grundvallar mati á umsækjendum auk þeirra sem voru tilgreindir í auglýsingu hefðu einkum verið yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu, þekking og reynsla af rannsóknum sakamála ásamt þekkingu og reynslu af rannsóknum í málum sem féllu undir umrædda deild. Lögreglumaðurinn taldi augljóst, þegar litið væri til umsóknargagna, að hann hefði ekki einungis mun meiri reynslu og þekkingu í þessum matsþáttum heldur jafnframt mun fjölbreyttari en sá umsækjandi sem skipaður var í embættið. Þrátt fyrir það hafi umsækjandinn verið í mati látinn standa jafnfætis eða framar honum.

Aldur

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafnaði því alfarið að hafa mismunað lögreglumanninum á grundvelli aldurs og benti á að sá sem skipaður var í stöðuna hafi verið nálægt honum í aldri.

Því var einnig hafnað að ekki hafi verið næg sérþekking til staðar í valnefndinni þar sem æðsti yfirmaður og sviðsstjóri rannsóknarsviðs hafi setið í nefndinni.

Embættið tók hins vegar undir það með lögreglumanninum að staðhæfing í rökstuðningi til hans um að einungis tveir umsækjendur hefðu haft reynslu af stjórnun innan lögreglu væri röng. Fallist var einnig á að reynsla lögreglumannsins af stjórnun innan lögreglu hefði mátt vega meira. Þannig hefði mátt veita honum í matinu fleiri stig vegna stjórnunarreynslu en þótt hann hefði fengið fullt hús fyrir þann matsþátt hefði það ekki leitt til þess að honum hefði verið boðið í næsta viðtal. Með orðalagi í rökstuðningi hafi ekki verið vísað til kynslóðar eða aldurs lögreglumannsins heldur hafi verið vísað til breytinga á vinnumarkaði og að það væri málefnalegt að meta nýrri reynslu meira en eldri.

Rangt

Kærunefnd jafnréttismála segir í sinni niðurstöðu að ljóst sé að mat Lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu á stjórnunarreynslu lögreglumannsins hafi verið rangt og það hafi verið viðurkennt. Ósamræmis gæti á milli fyrirliggjandi gagna og svara embættisins um hvaða forsendur voru lagðar til grundvallar við mat á hæfniskröfu um farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu.

Segir nefndin það ekki vera ómálefnalegt við mat á því hvort tiltekin starfsreynsla falli að hæfniskröfu að meðal annars sé litið til árafjölda eða hversu nýleg reynsla sé. Af gögnum málsins verði hins vegar ekki annað ráðið en að mat embættisins á umsækjendum hafi byggst eingöngu á þessum tveimur þáttum og þá öðru fremur á því hversu nýleg reynslan væri. 

Ekki verði séð af gögnum málsins hvernig lagt hafi verið mat á það hvort slík reynsla væri farsæl sem hafi sérstaklega verið tekið fram í auglýsingu. Þá verði ekki séð hvernig inntak reynslu lögreglumannsins hafi verið metið og þá hvernig það félli að hæfniskröfu auglýsingar eða nýttist í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns. Þá verði ekki fram hjá því litið að í rökstuðningi embættisins hafi verið vísað sérstaklega í svörum til mismunandi kynslóða á vinnumarkaði, en aðila greini á um það hvort með því hafi verið vísað til aldurs lögreglumannsins.

Kærunefnd jafnréttismála segir að í ljósi alls þessa sé niðurstaðan sú að lögreglumaðurinn hafi hafi leitt líkur að því að aldur hafi haft áhrif á þá ákvörðun að bjóða honum ekki til síðara viðtals um starfið og þar með hafi hann verið útilokaður frá umsóknarferlinu

Nefndin segir að af þeim upplýsingum sem liggi fyrir verði ráðið að niðurstaða valnefndar hafi grundvallast öðrum þræði á því að lögreglumanninn hafi skorti skýra framtíðarsýn sem ekki hafi verið sérstök hæfniskrafa samkvæmt auglýsingu. Þá hafi Lögreglustjórinn á Höfuðborgarsvæðinu gengist við því að mat hans á stjórnunarreynslu lögreglumannsins hafi verið ófullnægjandi. Að þessu athuguðu hafi lögreglustjóranum ekki tekist sönnun um að matið á lögreglumanninum hafi verið forsvaranlegt eða byggt á málefnalegum sjónarmiðum í veigamiklum atriðum.

Niðurstaðan er því sú að lögreglumanninum hafi verið mismunað á grundvelli aldurs og þar með hafi Lögreglustjórinn á Höfuðborgarsvæðinu brotið gegn lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði, þegar skipað var í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅