Landsliðskonur biðla til þjóðarinnar - Bjóða frítt á völlinn á einn stærsta leik í sögunni
KSÍ og bakhjarlar sambandsins bjóða þjóðinni á landsleik Íslands og Portúgals á Laugardalsvelli 5. desember.
Um er að ræða seinni leikinn í úrslitaleik umspilsins um sæti á HM, en Stelpurnar okkar hafa aldrei fyrr komist í lokakeppnina.
Hér neðar má sjá upplýsingar frá KSÍ um boðsmiðana og kraftmikið myndband þar sem landsliðskonur hvetja landann til að mæta á völlinn.
Frá KSÍ:
Skrifum söguna saman
KSÍ og bakhjarlar sambandsins bjóða þjóðinni á landsleik Íslands og Portúgals á Laugardalsvelli 5. desember.
Með verkefninu bjóða KSÍ og bakhjarlar sambandsins þjóðinni á leikinn með það að markmiði að fylla Laugardalsvöll og skapa sterka heimavallarumgjörð.
Almenna boðsmiðaferlið opnar 17. nóvember kl. 12. Boðsmiðar verða sóttir í miðakerfi KSÍ og verða með númeruðum sætum.
Hægt verður að sækja um boðsmiða til kl. 23:59 23. nóvember. Miðum verður úthlutað af handahófi í framhaldinu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗